Formsins vegna

Gunnar Kr.
Formsins vegna
Listasafnið á Akureyri, 27. ágúst - 23. október

Myndlist Gunnars Kr. (f. 1956) einkennist af slagkrafti og þunga sem birtist með fjölbreyttum hætti. Hann hefur t.d. teiknað biksvartar blýsólir og logskorið stálblóm. Undanfarin misseri hefur Gunnar notað fislétt og viðkvæmt hráefni til myndgerðar – pappír – sem hann mótar, sker, litar og raðar saman uns tilætluðum áhrifum er náð. Í spennunni milli formrænnar tjáningar listamannsins annars vegar og hráefnisins sem hann notar hins vegar, er feiknarleg orka. Verk Gunnars Kr. líkjast um margt náttúrunni sjálfri; þau eru sterk, form endurtaka sig og fegurðin ríkir – þótt hún sé á stundum ógnvekjandi. Kröftug en þó viðkvæm. Myndlistarferill Gunnars Kr. Jónassonar spannar þriðjung aldar og hefur hann víða komið við. Á fjölmörgum sýningum hefur hann sýnt málverk, skúlptúra, teikningar og vatnslitamyndir. Gunnar býr og starfar að list sinni á Akureyri.

Sýningarstjóri: Joris Rademaker.

HÉR má sjá sýningarskrá.