Alana LaPoint - Töfruð djúp

 

Alana LaPoint
Töfruð djúp
Listasafnið á Akureyri, Ketilhús
11. - 26. febrúar

„Þetta landslag varð til vegna löngunar til að tjá þá hrifningu sem ég upplifi þegar ég stend í fjöruborðinu. Frá því sjónarhorni er ég ákaflega meðvituð um samtengingu alheimsins. Um ímyndunarafl mitt leika lausum hala sögur af fólki og lífverum sem lifa og deyja í þessu vatni og fylla mig bæði af tilfinningu fyrir smæð minni, og óviðjafnanlegri friðsæld. Ég reyni að miðla skynhrifunum gegnum þessi málverk og gera þau aðgengileg áhorfendum. Efni til listsköpunar, ein og sér, veita mér mikinn innblástur því möguleikarnir eru svo margir. Linnulaust kanna ég eiginleika litarefna og málningar og elti uppi nýjar aðferðir og tækni. Þessi óseðjandi forvitni og fróðleiksfýsn veitir mér innblástur, jafn takmarkalausan og hafið.“

Alana LaPoint (f. 1991) er að mestu leyti sjálfmenntaður listamaður sem hefur haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum á heimaslóðum sínum í Vermont í Bandaríkjunum á síðustu tíu árum. Alana vann undir leiðsögn abstraktmálarans Galen Cheney 2007-2009.