Listasafnið á Akureyri » Uppákomur 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

Myndir sem fanga: Ögrandi list og tilraunir til ritskoðunar

Umdeild túlkun breska listamannsins Chris Ofili á Maríu mey

Umdeild túlkun breska listamannsins Chris Ofili á Maríu mey

Þriðjudaginn 26. janúar klukkan 17:15 stendur Listasafnið á Akureyri fyrir fyrirlestri bandaríska fræðimannsins dr. Steven C. Dubin í Ketilhúsinu á Akureyri. Yfirskrift fyrirlestrarins er Myndir sem fanga: Ögrandi list og tilraunir til ritskoðunar ( e. “Arresting Images: Controversial Art and Attempts to Censor It”) og fer hann fram á ensku. Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis.

Dr. Dubin er mannfræðingur sem hefur sérhæft sig í rannsóknum á sviði menningar, lista og safnafræða. Hann hefur beint sjónum sínum að ritskoðun og tjáningarfrelsi og bók hans um pólitíska list, Arresting Images: Impolitic Art and Uncivil Actions, vakti mikla athygli þegar hún kom út árið 1992. Dubin hefur haldið fjölda fyrirlestra og ritað um umdeilda list, átök innan listheimsins og stuðning hins opinbera við listir. Dubin skrifar reglulega greinar fyrir Art in America auk þess að hafa rannsakað og fjallað sérstaklega um áhrif lýðræðisumbóta á menningarlíf í Suður-Afríku við fráhvarf aðskilnaðarstefnunnar.

Steven C. Dubin var prófessor í mannfræði við Fylkisháskólann í New York í 19 ár en hefur starfað sem prófessor í menningarstjórnun við Columbia Háskóla í New York frá 2005, auk þess að gegna rannsóknarstöðu við skólann á sviði afrískrar menningar.

Dubin mun í fyrirlestrinum fjalla um myndlistarmenn og sýningar sem hafa verið mjög umdeildar og leitt til kröftugra átaka á síðari hluta 20. aldar og í upphafi 21. aldar. Söfn gegna mikilvægu hlutverki í þeim átökum sem átt hafa sér stað í Bandaríkjunum og annars staðar í heiminum gagnvart menningu og ritskoðun sem líkt hefur við stríðsástand um yfirráð menningar. Upprunalega voru söfn álitin eins konar hof eða helgistaðir en hafa þróast í þá átt að vera lýðræðislegur og spennandi vettvangur ætlaður almenningi þar sem tekist er á um ólík sjónarmið.

Hann er staddur hér á landi á vegum Fulbright stofnunar og námsbrautar í safnafræðum við félagsvísindadeild Háskóla Íslands.

Staður: Ketilhúsið, Listagilinu á Akureyri
Stund: Þriðjudaginn 26. janúar klukkan 17:15


UPPLÝSINGAR

Listasafnið á Akureyri

Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá 12-17

Aðgangur er ókeypis í boði Akureyrarbæjar

Nánar »

Á DÖFINNI

Opnun í Ketilhúsinu 11. febrúar kl. 15

Titill sýningarinnar er Mórbergur – Rafsteinn – Sæmunkur en það eru nafngiftir sem listamennirnir Árni Valur Axfjörð, Hafsteinn Michael Guðmundsson og Jón Sæmundur Auðarson hafa valið sér í tilefni sýningarinnar.

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »