Listasafnið á Akureyri » Um Listasafnið á Akureyri 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

Listasafnið á AkureyriOpið er alla daga vikunnar nema mánudaga frá 12 til 17 og aðgangur er ókeypis í boði Akureyrarbæjar

Kaupvangsstræti 12
600 Akureyri
sími 461 2610
tölvupóstur art@art.is

Forstöðumaður safnsins er Hannes Sigurðsson
Safnfulltrúi er Sóley Björk Stefánsdóttir

Listasafnið á Akureyri var stofnað 1993 og hefur verið einn af burðarásum menningarlífsins á Akureyri allar götur síðan. Fyrsti forstöðumaður safnsins var Haraldur Ingi Haraldsson en Hannes Sigurðsson tók við safninu árið 1999 og hefur stýrt því síðan.

Hugmyndin að stofnun listasafns á Akureyri kom upphaflega fram í grein Jónasar Jónssonar frá Hriflu í dagblaðinu Degi á Akureyri árið 1960. Þrír áratugir liðu þó uns hugmyndin komst aftur í umræðuna og varð hún loksins að veruleika á afmælisdegi bæjarins árið 1993. Var safnið opnað með veglegri sýningu á listaverkum í eigu Akureyrarbæjar, auk samsýningar nokkurra listamanna í miðsal og sýningar á verkum listamannanna Kristjáns Guðmundssonar og Finnboga Péturssonar í vestursal og klefum. Listasafnið á Akureyri er til húsa þar sem áður var Mjólkursamlag KEA, en byggingin er undir sterkum áhrifum frá Bauhaus-skólanum og hinni alþjóðlegu funkis-hreyfingu.

Markmið Listasafnsins á Akureyri er að efla myndlistarlíf á Akureyri, auka þekkingu og áhuga bæjarbúa á myndlist og stuðla að framgangi sjónlista og listmenntunar. Safnið leggur áherslu á að virkja sem flesta til þátttöku, að fræða almenning um sjónlistir og efla umræðu um samfélagið, menningu og listir en þar skipa safnkennsla, útgáfa og fyrirlestrahald stóran sess. Þá er einnig lögð áhersla á samstarf við erlenda aðila, ekki síst á norðurlöndum. Safnið leitast við að setja árlega upp nokkrar metnaðarfullar sýningar til að efla menningarlíf bæjarins, auka við þekkingu, áhuga og efla skilning á sjónlistum.

Safnið leggur áherslu á fjölbreytt sýningarhald og eru gerðar strangar listrænar kröfur til þess sem sýnt er á vegum safnsins. Auk eldri myndlistar er einnig lögð áhersla á að kynna það besta og framsæknasta á innlendum, jafnt sem erlendum, sýningarvettvangi. Safnið leggur áherslu á virkt og gott samstarf við listamenn, söfn, gallerí og aðrar stofnanir á Akureyri sem og á landinu öllu.

Listasafnið á Akureyri stefnir að því að komast í hóp annarra meginsafna á Íslandi og eignast lykilverk úr sögu íslenskrar myndlistar.

Hér er hægt að sjá grunnteikningu af safninu


UPPLÝSINGAR

Listasafnið á Akureyri

Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá 12-17

Aðgangur er ókeypis í boði Akureyrarbæjar

Nánar »

Á DÖFINNI

Opnun í Ketilhúsinu 11. febrúar kl. 15

Titill sýningarinnar er Mórbergur – Rafsteinn – Sæmunkur en það eru nafngiftir sem listamennirnir Árni Valur Axfjörð, Hafsteinn Michael Guðmundsson og Jón Sæmundur Auðarson hafa valið sér í tilefni sýningarinnar.

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »