Sjónlistamiðstöðin » Kristín Gunnlaugs – Inní rós 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

plakat_mynd



7. maí til 26. júní stendur yfir yfirlitssýning á verkum Kristínar Gunnlaugsdóttur sem var bæjarlistamaður Akureyrar 1996-1997. Kristín hefur haldið fjölda sýninga og hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir list sína. Kristín fæddist á Akureyri árið 1963 en býr nú og starfar á Seltjarnanesi.

Kristín útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1987 og fór þá beint í framhaldsnám til Ítalíu. Þar lærði hún m.a. íkonagerð í klaustri í Róm og stundaði nám í Ríkisakademíunni í Flórens árin 1988-1993. Kristín hefur síðustu 15 árin haldið margar einkasýningar og tekið þátt í mörgum sýningum, hér heima og erlendis. Hún hefur hlotið ýmsa styrki og viðurkenningar og hlotið nokkrum sinnum listamannalaun frá Menntamálaráðuneytinu, síðast árið 2009. Hún hefur verið valin bæjarlistamaður Akureyrar og einnig bæjarlistamaður Seltjarnarness 2008.


Landvonarinnar1-490x450



Eftir Kristínu má finna verk í eigu helstu listasafna landsins, opinberra stofnana, kirkna, m.a. sem altaristöflur og fjölda einstaklinga. Verk hennar hafa gegnum tíðina verið aðallega stór málverk á striga, eggtemperur á tré, íkonar og teikningar. Námsárin voru lituð af áherslum samtímalistar og minimalisminn var allsráðandi. Sunnar í álfunni kynntist Kristín ólíkum stefnum og hugmyndaheimur miðevrópskrar miðaldahefðar varð sá skóli sem hafði einna mest mótunaráhrif á hana. Djúpstæður áhugi á dýpt vitundarinnar hefur verið undirliggjandi tónn í verkum hennar, aðskilnaður mannsins við Guð, einsemd hans og leit.

Undanfarið hefur Kristín leitað nýrra leiða til að opna myndheim sinn og í myndlist hennar hafa orðið róttækar breytingar. Hún hefur lagt olíumálverkið á hilluna, í bili að minnsta kosti, og snúið sér að útsaum á striga.


Veggteppi V



Á sama tíma og sýningin opnar kemur út bók um listamanninn Kristínu Gunnlaugsdóttur og ber hún heitið Undir rós. Bókin er stór og þykk, prýdd mörgum myndum og umfjöllun um listamanninn. Útgefandi er Eyja og ritstjóri Páll Valsson. Eftirfarandi texti er lesinn af síðum bókarinnar:

Með kreppunni rótaðist margt upp, róðurinn þyngdist, ég var eirðarlaus og upplifði mig staðnaða. Fannst ég vera búin að fága mig út í horn, vinnan var orðin þung og orkufrek og ég fann ekki neistann.

Sköpunargleði, hvað var nú það?

Ég hafði málað fjallamyndir, há og torkleif fjöll, endurspeglun á eigin tilfinningalífi. Í verkinu Opinberun frá 2008 er táknrænt op í gegnum fjall og það var síðasta fjallamyndin. Ég var leið, afkoman var í hættu og öryggisnetið ekkert. Kannski hafði ég ekkert meira að segja í myndlist? Í þessum hugrenningum lokaði ég öllum túpum og krukkum, settist við borðið og ákvað að hreinlega að leika mér svolítið áður en ég myndi hætta alveg í myndlist. Bara teikna eitthvað ósjálfrátt og henda því svo. Hætta að hugsa.

Börnin komu heim með handavinnuna sína, strigapoka sem þau höfðu saumað á sjálfsmyndir úr ullarþræði. Þar var eitthvað sem ég varð skyndilega spennt fyrir, lína og sakleysi. Blankheit kreppunnar kröfðust þess að tilraunir mínar máttu ekki kosta neitt. Mig langaði að vinna með grófara efni og viðhafa hraðari vinnubrögð, eitthvað sem ýtti undir frelsið.

Ódýrasti girðingarstriginn í Garðheimum varð fyrir valinu og ég byrjaði að sauma úr afgangsull. Hér sameinaðist margt úr heimi húsmóðurinnar; saumaskapur, afgangar, hagsýni. En ég tók 180 gráðu beygju í myndmáli. Fyrst kom Bláa skessan sem er í sjálfsfróun og ég skalf af hneykslun og spenningi þegar fyrstu saumasporin voru tekin og hélt ég væri núna endanlega að tapa mér. Gleðin og krafturinn kom hins vegar samstundis og það var staðfesting þess að ég var á réttri leið. Ég treysti innsæi mínu, verkunum og forsjóninni og greip tækifærið að sýna verkin í sal Íslenskrar Grafíkur í febrúar 2010. Óháð því hvort ég gæti haldið áfram að lifa sem listamaður.

Fyrir sýninguna gerði ég ekki einu sinni verðskrá. Mörgum brá í brún en ég gladdist yfir stuðningnum sem ég fékk, ekki síst frá listamönnum. Listasafn Íslands keypti tvö stærstu verkin og ég gat haldið áfram.

Í sýningunni „Gullin mín“, í Studio Stafn í október 2010, fléttaði ég saman blaðgulli og eggtemperu, eða tækni helgimynda við nýtt myndmál. Hinn heiti kjarni mannlegrar tilveru, sem býr meðal annars í sköpum konunnar er leið innra lífs og fæðingar. Birting kvenorkunnar er minn veruleiki, flæði tilfinningakrafta er mitt tungumál og hvernig andlegur raunveruleiki brýtur sér leið eins og þunn ljósrák í bergsprungu, það er mín rödd.



Skoðaðu myndir frá sýningunni hér

Hér má lesa opnunarræðu Hannesar Sigurðssonar

Hér má lesa ræðu Páls Valssonar, rithöfundar, frá opnun sýningarinnar

Hér má hlusta á viðtal Péturs Halldórssonar við Kristínu í þættinum Okkar á milli sem útvarpað var á Rás 1 þann 16. maí 2011

Hér má hlusta á þáttinn Víðsjá frá 17. maí 2011 en síðasta atriðið í þættinum er viðtal við Pál Valsson rithöfund, sem er einn af höfundum bókarinnar Undir rós og fjallar hann um list og persónu Kristínar.

Hér má hlusta á Síðdegisútvarpið á Rás 2 þar sem Goddur ræðir um sýninguna. Þetta er síðasta atriðið í þættinum og hefst þegar 40 mínútur eru liðnar af þættinum.

Hér hefur Hjalti Hugason skrifað hugleiðingar á sýninguna á vefinn tru.is

Viðtal við Kristínu sem birtist í Morgunblaðinu 6. maí 2011

Viðtal við Kristínu sem birtist í Fréttablaðinu 20. maí 2011

Viðtal við Kristínu sem birtist í Morgunblaðinu 11. júní 2011

Ritdómur um bókina Undir rós, sem birtist í Fréttatímanum 29. júlí 2011

Hér er viðtal við Kristínu í Kastljósinu á RÚV 8. september 2011

Ritdómur um bókina Undir rós, sem birtist í Morgunblaðinu 19. október 2011



Myndskeið tekið í kringum opnun sýningarinnar. Eigandi Hákon Oddsson. Birt með leyfi Kristínar Gunnlaugsdóttur

Hér getur þú skoðað bók sem var gefin út í tilefni af sýningunni. Útgefandi er Eyja útgáfufélag. Birt með leyfi Kristínar Gunnlaugsdóttur. Smelltu á myndina til að stækka hana



Sýningin stendur frá 7. maí til 26. júní
Listasafnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12-17
Nánari upplýsingar í síma: 461-2610 eða með tölvupósti: art@art.is


NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »