Sjónlistamiðstöðin » Gústav Geir Bollason 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

plakat-GGB



Gústav Geir Bollason hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum hér heima og erlendis og haldið tíu einkasýningar. Þetta er í fyrsta sinn sem yfirlitssýning á verkum Gústavs er haldinn og gefst því gott tækifæri til að fá innsýn í feril þessa einstaka listamanns.

Glundroði og hrörnun eru hugðarefni Gústavs Geirs. Verk hans hverfast um tækifærin sem felast í framrás tímans. Hann vinnur með hluti sem fundnir eru á víðavangi, leikur sér með rekavið náttúrunnar og reköld mannanna. Landslagið læðist inn í ljósmyndasamsetningar, abstrakt grafísk verk og jafnvel verk búin til úr jörðinni sjálfri. Bútar úr jörðinni hafa verið sviptir samhengi sínu og hrifnir inn í galleríið og bíða þess þar að áhorfandinn púsli þeim saman í verkunum og á milli verka.



20110607__ICELAND-volundur-_MG_6728_vef



Miðpunktur sýningar Gústavs í Listasafninu á Akureyri er verk hans Fiskar bera ekki byssur (2004-2008). Þar skeytir listamaðurinn teikningar og málverk saman við myndbanda- og tónskúlptúra. Listilega unnar teikningarnar eru gerðar eftir kvikmynd af hendi sem gangsetur bátsvél. Með þessum teikningum fylgja útlínumyndir sem sýna þverskurð skipsskrokksins og á teiknaðar útlínurnar hefur listamaðurinn málað skipsskrúfuna. Kvikmyndavél á bátnum festi á filmu hafflötinn og lífið á sjónum. Þessari kvikmynd er varpað á vegg og á borð með vatni. Vatnsborðið endurspeglast einnig í myndinni sem varpað er á vegginn. Og freistist einhver áhorfandi til þess að dýfa fingrunum eða hendinni í vatnið, þá umhverfist kvikmyndin í bylgjur, gárur sem sjást bæði á vatnsborðinu og á veggnum.


f.b.e.b.verksmidj.09.75



Einn af hápunktum þessarar sýningar Gústavs Geirs er ný röð teikninga sem er í raun ætlað að þjóna sem eins konar myndstiklur og sýna okkur heiminn eftir að vistfræðilegt hrun hefur átt sér stað. Þegar olíulindirnar þorna upp skipta bílarnir ekki lengur máli; maður sést byggja hús úr gömlum gúmmídekkjum sem vart eru til annars nýt. Svokallaðir flóðhestabílar – sundursagaðir afturhlutar bifreiða sem dregnar eru áfram af hestum – aka hægt framhjá óplægðum túnum. Í drungalegustu teikningunni er beinamulningsvél að verki innarlega í hlöðu og í þeirri órakenndustu sturta tvær hendur hrútsvofu úr bíldekki ofan í læk. Myndaflokkurinn lýsir því hvernig heimurinn er reistur úr öskustó með nákvæmlega sömu hlutum og lögðu hann í eyði og hvernig samskipti manns og dýra leita aftur til fyrri hátta.


Hrae_6725



gustav
Gústav Geir er fæddur á Akureyri árið 1966. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1987-’89, nam við Magyar Képzömüveszeti Egyetem í Búdapest 1989-’90 og lauk DNSEP gráðu við Ecole Nationale d’Art í Frakklandi árið 1995. Gústav er nú búsettur á Hjalteyri og einn af stofnendum Verksmiðjunnar á Hjalteyri og situr í stjórn hennar.

Mynd af innsetningu í vinnslu á sýningunni:
5_innsetning



Hér getur þú skoðað sýningarskrána fyrir sýninguna. Smelltu á myndina til að fá stærri útgáfu





Umfjöllun Akureyri vikublaðs um sýninguna (25. ágúst 2011)

Umfjöllun Morgunblaðsins um sýninguna (27. ágúst 2011)

Viðtal við Hannes Sigurðsson um sýninguna í útvarpsþættinum Víðsjá á RÚV (26. september 2011 – viðtalið hefst á 14. mínútu )

Viðtal við Gústav Geir í útvarpsþættinum Okkar á milli á RÚV (31. október 2011)

Umfjöllun um sýninguna í sjónvarpsþættinum Djöflaeyjunni á RÚV (22. nóvember 2011 – umfjöllunin hefst þegar 10 mínútur eru liðnar af þættinum)

Hér getur þú skoðað myndir af sýningunni

Sýningin stendur til sunnudagsins 30. október.
Listasafnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12-17
Nánari upplýsingar í síma: 461-2610 eða með tölvupósti: art@art.is


NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »