Sjónlistamiðstöðin » Tryggvi Ólafsson – Varið land 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

VaridLand

Þann 20. mars 2010 opnaði Listasafnið á Akureyri veglega yfirlitssýningu á verkum Tryggva Ólafssonar listmálara. Sýningin ber nafnið Varið land og spannar 40 ár af feril Tryggva, tímabilið frá 1969 til 2009.

Tryggvi hefur fyrir löngu skipað sér í framvarðasveit íslenskrar myndlistar með sérstæðum og auðþekkjanlegum stíl sínum og er í hópi þekktustu núlifandi myndlistarmanna Íslands. Hann hóf ungur að mála og nam myndlist bæði hér á landi og Kaupmannahöfn í Danmörku, þar sem hann hefur búið í yfir 40 ár. Tryggvi hefur haldið fjölda einkasýninga á löngum ferli sínum og tekið þátt í samsýningum í fjölmörgum löndum. Verk hans prýða bækur og blöð og hann hefur skreytt byggingar bæði hér á landi og erlendis.

ScanRettir

Eitt orð – örlæti – lýsir myndlist Tryggva Ólafssonar betur en flest önnur. Einhverjum kann að þykja auðveldara að heimfæra þetta orð á geðríkan lista- og lífsnautnamanninn sjálfan, sem áratugum saman skaut skjólshúsi yfir umflakkandi Íslendinga í margs konar ásigkomulagi meðan hann bjó í Kaupmannahöfn. En þetta á engu síður við um myndlist hans, enda er varla við öðru að búast af svo heilsteyptum manni.

Þetta „örlæti“ er að sumu leyti innbyggt í þá myndlistarstefnu sem Tryggvi hefur helgað sig frá því um miðjan sjöunda áratuginn, nefnilega popplistina. Sú list grundvallast ekki á viðteknum módernískum hugmyndum um nýsköpun frá grunni, heldur á meðhöndlun listamannsins á myndrænum ummerkjum nútíma neyslu- og fjölmiðlasamfélags, teiknimyndasögum, ljósmyndum, auglýsingaskiltum, vöruumbúðum, kvikmyndabútum og fleiru í þá veru.

Í myndum Tryggva endurspeglast lífsreynsla hans og skoðanir, veruleiki Íslendings sem hefur orðið fyrir þroskandi áhrifum af langri dvöl erlendis. Hann á sinn eigin myndheim; goðsagnir sem hann hefur ofið úr hugsun sinni, heimþrá, minningum og hugleiðingum um heiminn.

Á þessu ári eru fimmtíu ár liðin frá fyrstu sýningu Tryggva hér á landi en listamaðurinn fagnar einnig 70 ára afmæli sínu síðar á árinu. Það má því segja að Tryggvi standi á miklum tímamótum nú.

Thor Vilhjálmsson rithöfundur og Sören Haslund, sendiherra Danmerkur á Íslandi, opna sýninguna sem haldin er í samstarfi við Málverkasafn Tryggva Ólafssonar í Neskaupstað.

ScanUtifundur

Sýningin stendur til 9. maí 2010.

Í tilefni sýningarinnar er gefin út sýningarskrá með umfjöllun um líf og list Tryggva eftir Aðalstein Ingólfsson.

[skoða sýningarskrá]
[Ræða Hannesar Sigurðssonar við opnun sýningarinnar]
Hér er hægt að hlusta á umfjöllun um sýninguna og Tryggva í þættinum Víðsjá á RÚV, umfjöllunin er aftast í þættinum.


NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »