Sjónlistamiðstöðin » Rím 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

RIM_plagat_final



Sýningin samanstendur af höggmyndum Ásmundar Sveinssonar (1893-1982) og verkum valinna samtímalistamanna, sem kallast á og ríma saman. Myndhöggvarinn Ásmundur var 20. aldar maður mótaður af 19. öldinni. Hann átti sér mörg viðfangsefni í listinni; mörg þeirra sótt í arfleifðina og þann tíðaranda sem skóp hann, en önnur í framtíðina, tæknina og vísindin. Listamennirnir sem valdir hafa verið til að sýna með Ásmundi hafa glímt við sömu hluti og Ásmundur en í nútímanum og í samhengi við sinn tíma og tíðaranda.



_MG_4736



Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni, auk Ásmundar Sveinssonar eru Birgir Snæbjörn Birgisson, Davíð Örn Halldórsson, Eirún Sigurðardóttir, Finnur Arnar Arnarson, Guðrún Vera Hjartardóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Kristín Gunnlaugsdóttir, Ólöf Nordal, Pétur Örn Friðriksson og Sara Riel. Tengsl verka Ásmundar Sveinssonar við verk listamanna samtímans endurnýjar innihald þeirra og dýpkar samtal þeirra við umhverfi sitt. Þótt verkin á sýningunni séu mótuð af ólíkum tíðaranda og tæknilegum möguleikum eiga þau sér innra rím sem sækir í sameiginlegan brunn þar sem uppspretta nýrra hugmynda virðist óþrjótandi.



_MG_4750

Sýningarstjórar eru Ólöf Kr. Sigurðardóttir og Sigríður Melrós Ólafsdóttir.

Hér má hlusta á umfjöllun um sýninguna þegar hún var opnuð í Ásmundarsafni í byrjun maí 2009. Umfjöllunin er aftast í þættinum.

Aðalstyrktaraðili sýningarinnar er Norðurorka. Ennfremur styrkir Flugfélag Íslands safnið.


Hér getur þú skoðað sýningarskrána fyrir sýninguna Rím. Smelltu á myndina til að fá stærri útgáfu. Hægrismelltu hér til að hlaða niður PDF útgáfunni



Sýningin stendur frá 3. júlí til 22. ágúst
Listasafnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12-17
Nánari upplýsingar í síma: 461-2610 eða með tölvupósti: art@art.is

<


NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »