Sjónlistamiðstöðin » Án Titils – Guðný Kristmannsdóttir 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

FM_81473

Snemma á ferli mínum heillaðist ég af því að mála stórar myndir. Orkan sem skapast í sjálfu ferlinu er gefandi. Stórt verk hefur önnur tengsl við umhverfið sem og áhorfandann og skapar möguleika á annarri nálgun. Málverkið umlykur áhorfandann og verður hluti af umhverfi hans.

Ég mála ávallt eigin hugarheim, þótt umhverfið hafi ævinlega áhrif á tilfinningarnar. Yrtri veruleiki verður óljós, gleymist jafnvel um stund, meðan tengslin við eigin huga styrkjast og ég sameinast málverkinu. Rökhugsun tilheyrir ekki þessum heimi. Hugurinn ferðast frjáls, án takmarkana.Hringur getur táknað hvort heldur sem er tunglið eða stein á hafsbotni og flest þar á milli. Því meira frelsi sem hugurinn fær, því betra. Frelsið er algjört og ferðin takmarkalaus.

Gott er að stíga út úr hversdagsleikanum um stund og ferðast um heim þar sem allt er mögulegt; engin hugmynd of stór til að verða hluti hugarheimsins. Í þessu draumkennda frelsi er ég alveg til í að villast af leið skynsemi og rökfestu í von um óvænta sýn á sköpunina.

Sumar hugmynda minna kvikna í draumi. Oft eru þetta skýrir og kraftmiklir draumar sem hafa mikil áhrif á mig. Andi dagsins litast gjarnan af þessum draumum. Stundum dreymir mig ákveðna liti og litasamsetningar. Einnig sérkennileg dýr eða skrýtnar verur. Ég fagna þessum undarlegu draumum sem veita mér ávallt mikinn kraft og mikla gleði. Boðskapur draumanna getur verið svo sterkur að hann skilji eftir sig spor sem breyta hugsunum mínum og hugmyndum um myndir mínar. Varanlega. Ég mála oft þessa drauma, ýmist í heild sinni eða að hluta.

Áður en ég byrja að mála mynd skissa ég hana ekki upp. Ég vil ekki skipuleggja myndina í upphafi. Ég vil að sköpunin eigi sér stað frá upphafi verks til enda, með öllum sínum hugarbrotum.

Í upphafi sköpunarferlisins vil ég ekki hefta mig of mikið. Ef einhver óljós hugmynd kviknar reyni ég að tæla hana fram án þess að rökhugsunin trufli um of. Gef henni tækifæri til að sýna sig og sanna án þess að taka afstöðu þegar í stað. Oft er þetta langt ferli tilrauna, áður en hugurinn nær að finna hugmyndirnar og fanga þær.

Hugmynd kviknar oft á sama tíma í líkamanum og höfðinu. Óvænt löngun til að halda á penslinum á ákveðinn hátt, beita aðeins oddinum laust eða öllum penslinum þéttingsfast, eins og innri dans milli hugar og líkama. Það er líkamleg gleði að mála eða teikna. Það er líkamleg nautn ásamt glímunni sem fram fer í huganum.

Ég nota sjaldan titla á myndir mínar í von um að þær geti staðið án orða. Titill finnst mér geta njörvað hugmynd niður, svipt hana frelsi til að verða til í huga áhorfandans. Óljós tilfinning sem þarf nokkur andartök til að rísa úr undirmeðvitundinni og fær tækifæri til að standa frjáls og óháð orðinu.

Gleðin felst í sköpuninni sjálfri, varir meðan á ferlinu stendur og oft stutt á eftir. Fljótlega læðist efinn að, þegar hugurinn tekur að skoða nýjar leiðir, efast um þær sem farnar hafa verið. Þetta er endalaus leit þar sem maður finnur alltaf fleiri spurningar og líklega felst hamingjan í því að leita. Finna hugmyndir kvikna, mála þær, vega þær og meta en að lokum efast um það allt.

Guðný Kristmannsdóttir


NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »