Listasafnið á Akureyri » Orð Guðs 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

Sýningin Orð Guðs var opnuð á Listasafninu á Akureyri laugardaginn 25. október 2008 og stóð til 14. desember. Málþing um sýninguna var haldið sama dag í Ketilhúsi kl.13.00 þar sem þátttakendur sýningarinnar kynntu hana og tóku á móti fyrirspurnum. Á sýningunni eiga sex listamenn verk sem fjalla um og vekja upp spurningar um ýmsa þætti kristinnar trúar. Gengið er út frá að færa trúarlega umræðu inn í íslenskan samtíma og á öðrum vettvangi en við höfum átt að venjast.

etienne

Á sýningunni er nýstárlegt verk eftir franska listamanninn Etienne de France þar sem þema kvöldmáltíðarinnar, hins sígilda viðfangsefni trúarlegrar listar á vesturlöndum er látið spegla veruleika samtímans á kómískan og gagnrýnin hátt. Sýnt verður nýtt verk eftir Steingrím Eyfjörð þar sem hugað er að ímynd og vilja Guðs í gagnvirku samtali við áhorfendur sem eru hvattir til að draga upp sína eigin hugmynd af Guði.

Leitin að gralinum á Kili er viðfangsefni Jeannette Castioni og sett í samhengi við spurningar um fjársjóð, leyndardóma og leitina að sannleikanum. Í verkinu fjallar hún um ímynd og áhrif Maríu meyjar í kristinni kenningu, um móðurlíkamann sem iðulega er upphafinn og afnumin á sama tíma.

olof_nordal

Ólöf Nordal sýnir innsetningu sína Volto santo eða hina heilögu ásjónu þar sem kristsmyndin er skoðuð í samhengi við sauðfjármenningu Íslendinga, með tilliti til lambsins, hirðisins og ekki síst forustusauðarins. Aðrar heilagar táknmyndir kristninnar hvað varðar sköpunarkraft Guðs og manna eru túlkaðar í verkum Þóru Þórisdóttur með sérstöku tilliti til kvennaguðfræði og veruleika heilags anda.

thora

Bænin sjálf, svar mannsins við ákalli Guðs mun fá sinn sess á sýningunni þar sem Arnaldur Máni Finnson býður upp á óvenjulega aðstöðu til bænahalds og íhugunar. Þá eru hinum ýmsu kristnu trúfélögum á Akureyri og víðar boðið að taka þátt í sýningunni í formi leiðsagnar þar sem tækifæri skapast til hugmyndalegrar samsömunar eða aðgreiningar eftir þörfum. Sýningarstjóri er Þóra Þórisdóttir.

[sýningarskrá]

Hér má hlusta á umfjöllun um sýninguna í þættinum Víðsjá á Rás 1. Umfjöllunin hefst á 8. mínútu í þættinum.

Sýningunni lýkur 14. desember og er safnið opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12-17. Nánari upplýsingar veitir Þóra Þórisdóttir, í síma 698-0448.


UPPLÝSINGAR

Listasafnið á Akureyri

Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá 12-17

Aðgangur er ókeypis í boði Akureyrarbæjar

Nánar »

Á DÖFINNI

Opnun í Ketilhúsinu 11. febrúar kl. 15

Titill sýningarinnar er Mórbergur – Rafsteinn – Sæmunkur en það eru nafngiftir sem listamennirnir Árni Valur Axfjörð, Hafsteinn Michael Guðmundsson og Jón Sæmundur Auðarson hafa valið sér í tilefni sýningarinnar.

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »