Sjónlistamiðstöðin » Facing China 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

Augliti til auglitis við Kína

facing_china_listamenn

Laugardaginn 17. maí kl. 13 var sýningin Facing China (Augliti til auglitis við Kína) opnuð í Listasafninu á Akureyri. Heiti sýningarinnar endurspeglar meginstef hennar, manninn og andlitið, sem sjá má í málverkum og skúlptúrum eftir níu kínverska samtímalistamenn sem vakið hafa alþjóðlega athygli og sett hvert sölumetið á fætur öðru í uppboðshúsum heimsins. Listamennirnir sem verk eiga á sýningunni eru Chen Qing Qing, Fang Lijun, Liu Ye, Tang Zhigang, Wei Dong, Yang Shaobin, Yue Minjun, Zhang Xiaogang og Zhao Nengzhi.

Öll verkin á sýningunni koma úr fórum hollenska listaverkasafnarans Fu Ruide. Hann hefur reynst Listasafninu á Akureyri mikill haukur í horni við mótun og undirbúning sýningarinnar og bætti við mörgum nýjum verkum í safn sitt til að gera hana sem best úr garði. Af þessu tilefni hefur verið gefin út glæsileg 270 síðna bók í hörðu bandi á ensku og kínversku sem í rita, auk forstöðumanns Listasafnsins og eiganda verkanna, Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands, hinn þekkti bandaríski listfræðingur Robert C. Morgan og virtasti gagnrýnandi kínverskrar myndlistar, Li Xianting, sem stundum er kallaður guðfaðir samtímalistarinnar þar í landi. Þá hefur Listasafnið gefið út dagblað sem hefur að geyma valda texta á íslensku og myndir í áðurnefndri bók. Sýningin er sett upp í tengslum við Listahátíð í Reykjavík, sem árið 2008 er að miklu leyti helguð alþjóðlegri myndlist. Frá Akureyri ferðast sýningin víða um lönd og verður hún meðal annars sett upp í söfnum í Austurríki, Þýskalandi, Noregi, Finnlandi og Svíþjóð. „Skandinavíuför“ hennar lýkur árið 2010, en þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt listasafn á frumkvæðið að skipulagningu alþjóðlegrar farandsýningar af þessari stærðargráðu. Sýningarstjóri er Hannes Sigurðsson forstöðumaður Listasafnsins á Akureyri.

090

Verkin úr safni Fu Ruide voru ekki einvörðungu valin vegna verðleika sinna, heldur einnig til að þau væru í samræmi við stef sýningarinnar, sem er manneskjan, fas hennar og fés, og þar af sprettur heitið, Facing China. En þótt líta megi á sýninguna harla bókstaflega í þessu tilliti, er heitið einnig margrætt með ráðnum hug, jafnvel eilítið ógnvænlegt, þar eð það að standa „augliti til auglitis við eitthvað“ þýðir að takast á við veruleikann. Sýningin býður því birginn að mögulega kvikni einhverjar væntingar til kínverskrar listar um að hún sé annaðhvort sprottin af eintómri pólitík eða seiðandi „exótísk“ og öðrum hefðbundnum grillum. Málverkin og skúlptúrarnir á sýningunni eru ekki til marks um „Kínverjaskap“ þessara listamanna. Þess í stað afhjúpa þau stereótýpur, beina sjónum okkar frá hinu dálítið kunnuglega að djúpri sjálfshygli þegar við leiðum augun um andlitin og líkamana sem bregður fyrir í verkunum. Þau afhjúpa persónulegar og andlegar sneiðmyndir af fólkinu sem þau sýna, og mannlega eiginleika sem eru almennari en áhorfandinn kann að gera sér í hugarlund við fyrstu sýn.

096

Hér er hægt að lesa dagblaðið sem gefið var út í tengslum við sýninguna og hér að neðan eru greinar hver fyrir sig

Afstæði tímans í ofsahröðum heimi
eftir Hannes Sigurðsson, forstöðumann Listasafnsins á Akureyri

Um listsöfnun
eftir Fu Ruide

Augliti til auglitis við Kína, augliti til auglitis við mig : Um listamenn, list og athugandann
eftir Fu Ruide

Hver er ég?
eftir Li Xianting, gagnrýnanda og „guðföður“ kínverskrar samtímalistar

Listin að leyfa öðrum að njóta
eftir Vigdísi Finnbogadóttur, Forseta Íslands 1980-1996

Kínverskir listamenn – borðtennisupplifun
eftir Christoph Fein, ljósmyndara

[skoða sýningarskrá]

Sýningin stendur til 29. júní og er safnið opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12–17.
Sýningarstjóri er Hannes Sigurðsson

Aðalstyrktaraðili sýningarinnar er Samskip sem veitti aðstoð við flutning á verkunum til landsins.

Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012


NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »