Sjónlistamiðstöðin » Taktföst tortíming 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

taktfost_tortiming

Taktföst tortíming

20. október – 16. desember

Síðasta sýning ársins í Listasafninu á Akureyri er í höndum kraftmikilla ungra listamanna, sem eru valdir af Francis McKee, safnstjóra Nýlistasafnsins í Glasgow, einum virtasta og framsæknasta sýningarstjóra Skotlands. Listamennirnir eru allir fæddir á áttunda áratugnum og hafa stundað framhaldsnám við Glasgow School of Art en koma frá Kanada, Englandi, Skotlandi og Íslandi. Þótt þeir eigi sama nám að baki hefur hver og einn þeirra markað sér efnistök, áherslur og tækni. Baldvin fæst við spennandi tilraunir á mörkum hljóðs og ljóss, en Will skapar ógnvekjandi stafrænar hreyfimyndir. Húmor og sterk konsept einkenna margvísleg verk Jónu, Erica afmyndar fólk og kannar viðþolið gagnvart hinu ljóta á meðan Lorna skapar merkingu eða kerfi úr fundnum munum og óreiðu.

Veglegt blað er gefið út vegna sýningarinnar og má þar m.a. finna grein eftir sýningarstjórann þar sem hann fjallar hann um rotnun, grotnun, eyðingu, tæringu, visnun, ryð og elli, sem virðast ef til vill í fljótu bragði koma ungum listamönnum lítið við. En McKee heldur því fram að eyðingin sé nauðsynlegur jarðvegur fyrir nýjar leiðir. Rómantíkin hefur verið nefnd sem mögulegt andsvar við síðpóstmódernisma og sem mögulegur lífsstíll á 21. öld. Draumsýn um endurvakningu hennar er hugmynd sem fleygt hefur verið fram undanfarna áratugi í fleiri en einu samhengi. Þessir listamenn eru kannski sporgöngumenn rómantíkur en miklu líklegra er að þeir svipti plástrinum af kaunum þess samfélags sem virðist staðráðið í að tortíma sér

Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012

taktfost_tortiming_styrktaradilar

Safnið er opið alla virka daga frá kl. 12-17. Aðgangseyrir kr. 400. Frítt á fimmtudögum.


NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »