Sjónlistamiðstöðin » Sjónlist 2007 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

sjonlist07

Samsýning á verkum þeirra listamanna sem tilnefndir hafa verið til Íslensku sjónlistaverðlaunanna í Listasafninu á Akureyri



Á Akureyrarvöku, laugardaginn 25. ágúst kl. 15, var opnuð sýning í Listasafninu á Akureyri á verkum þeirra listamanna sem tilnefndir hafa verið til Íslensku sjónlistaverðlaunanna 2007. Þetta er annað árið í röð sem Sjónlistaorðan verður veitt en markmiðið með henni er einkum þríþætt: 1) að beina sjónum að framúrskarandi framlagi íslenskra myndlistarmanna og hönnuða sem starfa hér heima og erlendis, 2) stuðla að aukinni þekkingu, áhuga og aðgengi almennings að sjónlistum og 3) hvetja til faglegrar þekkingarsköpunar og bættra starfsmöguleika sjónlistafólks á Íslandi.

Sex listamenn voru tilnefndir til Sjónlistaorðunnar í lok maí og hljóta tveir þeirra ríkuleg verðlaun fyrir framlag sitt, annar á sviði myndlistar og hinn á sviði hönnunar. Tvær milljónir króna koma í hlut hvors listamanns sem hreppir fyrsta sæti í sínum flokki, en þetta eru hæstu verðlaun sem veitt eru á sviði myndlistar og hönnunar hér á landi. Sjálf verðlaunaafhendingin fer fram 21. september í Flugsafni Íslands á Akureyri og verður sýnt frá henni í beinni útsendingu Sjónvarpsins. Við það tækifæri verður tilkynnt hver hlýtur heiðursorðu Sjónlistar fyrir einstakt æviframlag til sjónlistanna, en að þessu sinni verður það hönnuður. Daginn eftir verður efnt til alþjóðlegrar ráðstefnu um siðfræði og sjónlist þar sem breski heimspekingurinn Matthew Kieran og sænski hönnuðurinn Olof Kolte deila skoðunum sínum ásamt Ásu Björk Ólafsdóttur presti og Lilju Pálmadóttur myndlistarmanni.

Þeir sem tilnefndir voru í ár eru Birgir Andrésson fyrir einstakt framlag til könnunar á sambandi sjónrænnar skynjunar og merkingu texta í verkunum Black-out og Build. Hekla Dögg Jónsdóttir fyrir Fossinn, röð verka í sýningunni Ljósaskipti og Fireworks for LA sem ætlað er að lýsa upp umhverfið og skerpa skilningarvitin. Hrafnkell Sigurðsson fyrir ljósmyndaröðina Áhöfn sem sýnd var fyrst á sýnungunni Eiland í Gróttu og olíuverkin Afhafnasvæði sem sýnd voru í Gallerí Suðsuðvestur, en þessi verk þykja varpa nýju ljósi á íslenska sjómenn og karlmennsku. Fyrirtækið Nikita fyrir fatnað á konur sem stunda sjónbrettaíþróttir, en vörur Nikita eru nú seldar í eitt þúsund og fimm hundruð sérverslunum í þrjátíu löndum. Studio Granda fyrir viðbyggingu við Vogaskóla í Reykjavík og einbýlishús á Hofi á Höfðaströnd og síðast en ekki síst Össur hf. fyrir gervifótinn Proprio Foot.

Sjónlist er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Menntamálaráðuneytis, Iðnar- og viðskiptaráðuneytis, Sambands íslenskra myndlistarmanna, Form Ísland, Sjónvarpsins, Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar, Listaháskóla Íslands, Menningarmiðstöðvar Listagilsins og Listasafnins á Akureyri, sem átti frumvæðið að því að koma verðlaununum á fót. Aðalstyrktaraðili sýningarinnar er Landsvirkjun, en aðrir máttarstólpar eru Montana, Innfjárfesting, Glitnir, Flugfélag Íslands, Ásprent og Flugsafn Íslands.

Sýningunni lýkur 14. október og er safnið opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12-17. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður Listasafnsins, Hannes Sigurðsson, í síma 899-3386, netfang: hannes@art.is.


sjonlist_hnap_1

-

The Icelandic Visual Arts Awards 2007 >>

Myndir frá Grímuballi >>

Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012>>


AÐALSTYRKTARAÐILI
Máttarstólpar Sjónlistar
landsvirkjun


skjaldarmerki_2Mennta_idnadarogvrn


akureyri_2

NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »