Sumarsýning Listasafnsins á Akureyri, sem var opnuð laugardaginn 30. júní 2007, er helguð yfirliti á verkum Georgs Guðna landslagsmálara, en þar gefur að líta höfundarverk eins helsta listamanns sinnar kynslóðar. Í stað þess að sýna verk Guðna í réttri tímaröð er hver hinna þriggja sýningarsala safnsins tileinkaður ákveðnu minni sem oft bregður fyrir á ferli Guðna: fjöll, dalir og sjóndeildarhringur. Með því að nálgast verkin út frá þema fremur en tímaröð geta áhorfendur séð hvernig þau hafa þróast gegnum nýja fagurfræðilega og gagnrýna linsu.
Listasafnið á Akureyri hefur af þessu tilefni gefið út glæsilega 180 síðna bók í stóru broti um Georg Guðna sem prýdd er fjölda mynda. Í bókinni er einnig að finna ítarlega fræðilega ritgerð eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann safnsins, „Þar sem himinn mætir jörð“, ásamt grein eftir Aðalstein Ingólfsson um Guðna og íslensku landslagshefðina. Í ritgerð Hannesar er fjallað um hvernig samræða landslagsins í verkum Guðna leitar jafnvægis við þá skynjun sem þetta viðfangsefni veitir, hvernig Guðna tekst að töfra fram þær fíngerðu sjónhverfingar sem fært hafa honum viðurkenningu og aðdáun svo margra. Í ritgerðinni er einnig fjallað um hið pólitíska vægi landslagsmálverksins sem oft er álitið gjörsneytt öllu slíku hlutverki.
Þegar Guðni hóf nám við Myndlista- og handíðaskólann árið 1980 var málverkið nýlega aftur komið í tísku með skvettum og slettum. Á skólaárunum gusaði Guðni málningunni á strigann, lét hana leka í dropatali eða bókstaflega rigna á léreftið. Stíll hans átti rætur að rekja til nýja expressjónismans sem fram kom upp úr 1980 og tengdist þeim menningarlegu og sögulegu straumum beggja vegna Atlantshafsins sem leiddu til loka móderníska tímabilsins. Það sem í fyrstu voru handahófskenndir dropar tók smám saman á sig mynd risavaxins spegilslétts lóns, undarlegs spegils sem lítur á stundum út fyrir að vera glerharður en samt svo sveigjanlegur að hægt væri að stíga í gegnum hann. Fyrst birtist landslagið á striga listamannsins, og síðan kom sjálfur listamaðurinn í ljós: Georg Guðni, landslagsmálari.
Guðni var skyndilega orðinn gamaldags landslagsmálari í landi þar sem abstrakt konseptlist hafði verið við völd í meira en tvo áratugi. Þegar hann afhjúpaði verk sín í Nýlistasafninu árið 1985 urðu áhorfendur heillaðir. Persónuleg efnistök og sérstæð nálgun Guðna gerði það að verkum að honum var strax hampað og hann lauk námi sem boðberi nýrrar sýnar á eitthvað sem kallast gat séríslenskt. Guðni hafði enduruppgötvað og endurreist íslensku landslagshefðina sem listheimurinn var búin að afskrifa sem dauða og úr sér gengna. Síðan þá hafa margir myndlistarmenn fetað í fótspor Guðna þannig að úr hefur orðið nýr skóli íslenskrar landslagslistar.
Sýningunni lýkur 19. ágúst. Nánari upplýsingar veitir Hannes Sigurðsson, forstöðumaður, í síma 899-3386
Aðalstyrktaraðili sýningarinnar er Norðurorka, en auk þess styrktu Orustuhóll, Gunnar Dungal og Þórdís Alda Sigurðardóttir, Sjóvá-Almennar, Sparisjóður Bolungarvíkur og Icelandair útgáfu bókarinnar.
Aðrir styrktaraðilar safnsins eru Flugfélag Íslands og Flytjandi.
Opnunarræða Hannesar Sigurðssonar >>
Inngangur Hannesar Sigurðssonar úr bókinni
The Mountain: Speglandi Speglar >>
The introduction in English >>
The preface to the book by Hannes Sigurdsson
The Mountain: Mirroring Mirrors >>
Smellið á myndina til að hlaða bókinni niður í pdf formi
Click the image to download the book as a pdf file
Hér má lesa viðtal sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins 30. júní 2007, við Hannes Sigurðsson, forstöðumann Listasafnsins á Akureyri og sýningarstjóra þessarar sýningar.
Hér má lesa umfjöllun um sýninguna sem birtist í Morgunblaðinu 14. júlí 2007.
Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012




Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.