Sjónlistamiðstöðin » Andrew Rogers : Lífstakturinn 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

Forsida

Laugardaginn 5. maí kl. 15 var opnuð í Listasafninu á Akureyri yfirlitssýning á jarðlistaverkefni Andrews Rogers, Lífstakturinn. Sýningin stóð til 24. júní 2007

Ástralski skúlptúristinn Andrew Rogers er á góðri leið með að stimpla sig inn í listasöguna með risastórum grjótgörðum (e. geoglyphs) sem koma til með að mynda keðju umhverfis heimskringluna. Þegar þetta er skrifað eru sjö af þeim tólf umhverfisverkum sem hann afréð að skapa orðin að veruleika, þar af eitt á Akureyri.

celebration-of-life

Ævintýrið hófst í Arava-eyðimörkinni í Ísrael í mars 1999 þar sem hann reisti fjögur útilistaverk næstu árin. Drjúgur tími leið þar til verkefnið teygði anga sína til annarra landa en þá rak hvert stórvirkið annað. Næst í röðinni var eitt mesta þurrkasvæði jarðar, Atacama-eyðimörkin í Chile. Fljótlega á eftir fylgdu Cerro Rico-fjallahéruðin í Bólivíu, Sri Lanka, You Yangs-þjóðgarðurinn í Ástralíu, Akureyri og nágrenni (september 2006) og mánuði síðar Góbí-eyðimörkin í Kína gegnt Qilian-fjallabeltinu við vesturenda Kínamúrsins. Í framtíðinni verða fleiri steingarðar reistir á Indlandi, í Bandaríkjunum, Bretlandi og Austur-Evrópu. Þegar verkefninu lýkur munu yfir 5000 manns í sex heimsálfum hafa lagt hönd á plóginn við að reisa steingarðana.

Samheitið á þessu stærsta jarðlistarverkefni sem ráðist hefur verið í á okkar tímum er Lífstakturinn (Rhythms of Life) og samanstendur hvert myndverk vanalega af þremur steingörðum eða táknum. Hin tvö táknin tengjast viðkomandi svæði, eru öll ævaforn og eftir óþekkta höfunda. Yfirleitt eru aðeins nokkrir kílómetrar milli táknanna sem eru oft í sjónmáli hvert frá öðru. Flest verkin eru reist utan alfaraleiðar á friðhelgum stöðum og við gerð þeirra hafa verið notuð þúsund tonna af grjóti.

Kenya_1

Andrew Rogers hafði haft augastað á Íslandi fyrir verkefni sitt þegar hann komst í samband við Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnins á Akureyri, sem átti mestan þátt í staðarvali og þróun hugmynda, m.a. hver yrðu tákn Íslands í verkefninu.

Eins og á hinum stöðunum var gengið út frá því að reistar yrðu þrjár táknmyndir í nánd við hver aðra í náttúru utan byggða. Tvö tákn áttu að standa með Lífstaktinum og vísa til lands og þjóðar; önnur táknmyndin sem varð fyrir valinu er Akureyrarörninn, hin forn rún sem táknar Nú. Endanleg staðsetning verkanna varð sú að Örninn er í Hlíðarfjalli, steinsnar frá skíðaskálanum, rúnin Nú efst á Vaðlaheiði og Lífstakturinn í Fálkafelli. Úr góðri fjarlægð má auðveldlega greina táknin sem eru komin til að vera; hver veit nema sagnfræðingar 23. aldar gætu dregið þá ályktun að verk Rogers væru mörg þúsund ára gömul ef heimurinn færist í hrikalegum náttúruhamförum og fátt annað stæði eftir. Þegar jarðlistaverkunum var lokið leigði Rogers þyrlu eins og venja hans er og lét skrásetja garðana með aðstoð Páls Stefánssonar ljósmyndara. Fimmtán barnshafandi konur á Akureyri sem auglýst var eftir voru ljósmyndaðar í bak og fyrir ofan á Lífstaktinum og létu þær ekki hitastigið, fimm gráður, aftra sér frá því að veita afkvæminu hlutdeild í ódauðlegu listaverki.

pregnantwomen2

Sýningin í Listasafninu á Akureyri er fyrsta almenna yfirlitssýningin á þessu stórbrotna verkefni, en það er vel við hæfi því listasafnið tengist gerð verkefnisins á Íslandi órofa böndum og vann því brautargengi frá upphafi til enda með aðstoð Arndísar Bergsdóttur, sem ráðinn var verkefnastjóri, og Sigrúnar Bjarkar Jakobsdóttur, núverandi bæjarstjóra á Akureyri. Afla þurfti margs konar opinberra leyfa og gera þurfti mat á umhverfisáhrifum og auglýsa verkefnið með grenndarkynningu. Þá þurfti að leigja vinnuvélar og ráða til verksins landmælingamenn með nákvæm tæki, verkamenn og steinhleðslumenn.

Listasafnið á Akureyri hefur gefið út glæsilega 140 síðna bók um jarðlistaverkefnið Lífstaktinn og framkvæmd þess í Ísrael, Chile, Bólivíu, Sri Lanka, Ástralíu, Akureyri og Kína. Þetta er fyrsta bókin þar sem verkefninu eru gerð heildræn skil og fer hún í alþjóðlega dreifingu. Greinarhöfundar eru Hannes Sigurðsson listfræðingur og forstöðumaður Listasafnins og hinn virti bandaríski gagnrýnandi Lilly Wei.

Tveir ástralskir kvikmyndatökumenn fylgdu Rogers eftir hvert fótmál við gerð verkanna þriggja á Akureyri, en gerðar hafa verið heimildarmyndir um hvert og eitt þessara verkefna hans. Afraksturinn er hálftíma mynd um gerð verkanna og mannlífið á Akureyri og verður hún frumsýnd í Sjónvarpinu á Uppstigningardag, fimmtudaginn 17. maí kl. 19.35. Þá hefur Discovery Channel fest kaup á þáttunum og verða þeir teknir til sýninga um allan heim.

Sýningunni lýkur 24. júní 2007. Listasafnið á Akureyri er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12-17. Aðgangseyrir er kr. 400. Frítt á fimmtudögum.

Myndir af opnun sýningarinnar má sjá hér >>

Bókinni má hlaða niður hér >>

Hér er vefur Andrew Rogers >>

Hér er efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012 >>


NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »