Sjónlistamiðstöðin » Sjónlist 2006 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

Samsýning á verkum
 þeirra listamanna
sem 
tilnefndir hafa verið til 
íslensku sjónlistaverðlaunanna 
í Listasafninu á Akureyri

logo

Á Akureyrarvöku, laugardaginn 26. ágúst kl. 15, var opnuð sýning í Listasafninu á Akureyri á verkum þeirra listamanna sem tilnefndir hafa verið til íslensku sjónlistaverðlaunanna 2006. Fram til þessa hafa engin verðlaun verið veitt á Íslandi á sviði sjónlista sambærileg verðlaunaveitingum í bókmenntum, tónlist, leiklist og kvikmyndum. Með Íslensku sjónlistaverðlaununum er þess freistað að gera hlut sjónlistanna hærra undir höfði, en markmiðið með þeim er einkum þríþætt: 1) að beina sjónum að framúrskarandi framlagi íslenskra myndlistarmanna og hönnuða sem starfa hér heima og erlendis, 2) stuðla að aukinni þekkingu, áhuga og aðgengi almennings að sjónlistum og 3) hvetja til faglegrar þekkingarsköpunar og bættra starfsmöguleika sjónlistafólks á Íslandi.

Sex listamenn voru tilnefndir til Íslensku sjónlistaverðlaunanna í lok maí og hljóta tveir þeirra ríkuleg verðlaun fyrir framlag sitt, annar á sviði myndlistar og hinn á sviði hönnunar. Tvær milljónir króna koma í hlut hvors listamanns sem hreppir fyrsta sæti í sínum flokki, en þetta eru mestu verðlaun sem veitt hafa verið á sviði myndlistar og hönnunar hér á landi. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn myndlist og hönnun eru sameinuð með þessum hætti í heiminum. Sjálf verðlaunaafhendingin fer fram 22. september í Samkomuhúsinu á Akureyri og verður sýnt frá henni í beinni útsendingu Sjónvarpsins. Daginn eftir verður efnt til alþjóðlegrar ráðstefnu um hvernig staðið er að sambærilegum verðlaunum í öðrum löndum og hvaða lærdóm hægt er að draga af þeim. Samheiti þessara atburða er Sjónlist 2006.

Forsaga, framkvæmd og framtíðarvonir
Þeir listamenn sem tilnefndir voru í ár
Styrktar- og samstarfsaðilar (PDF)
Sýningarskrá (PDF)

Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012


NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »