Sjónlistamiðstöðin » Hraunblóm 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

Hraunblóm

14. janúar – 26.febrúar

Fyrsta sýning ársins í Listasafninu á Akureyri, Hraunblóm, var opnuð laugardaginn 14. janúar kl. 15. Sýningin er unnin í samstarfi við Listasafn Sigurjóns Ólafssonar og hefur að geyma verk eftir Danina Else Alfelt og Carl-Henning Pedersen og félaga þeirra Svavar Guðnason og Sigurjón Ólafsson. Í lok síðari heimsstyrjaldar haslaði abstraktlistin sér völl hér á landi og réð lofum og lögum næstu tvo áratugina, en fram að því hafði natúralismi og íslensk náttúra verið aðalviðfangsefni listamanna. Sýningin er öðrum þræði yfirlit yfir feril Svavars Guðnsonar á tímabilinu frá 1942-49 og eru margar af hans dýrmætustu perlum fengnar að láni frá Listasafni Íslands og Listasafni ASÍ, þar á meðal Gullfjöll, Íslandslag, Stuðlaberg, Einræðisherrann og Hágöngur. Ennfremur eru verk eftir Svavar á sýningunni í eigu Menningarmiðtöðvar Hornafjarðar. Verk Sigurjóns koma frá Listasafni Sigurjóns og verk Carl-Hennings og Else Alfelt frá listasafni þeirri hjóna í Herning í Danmörku.

Tilgangur þess að sýna saman verk þeirra Else Alfelt, Carl-Hennings Pedersen, Svavars Guðnasonar og Sigurjóns Ólafssonar er að varpa ljósi á afmarkaðan þátt dansk-íslenskrar listasögu. Þessi kafli hófst á fjórða áratug síðustu aldar þegar Svavar og Sigurjón störfuðu báðir í Danmörku og teygði sig til Íslands eftir stríð er Svavar kom því til leiðar að danska Høstudstillingen frá 1947 var sett upp í Listamannaskálanum vorið 1948. Á sýningunni voru verk eftir helstu framúrstefnulistamenn Dana eins og Asger Jorn, Egill Jacobsen, Ejler Bille, Erik Thommesen, Henry Heerup, Richard Mortensen og Robert Jacobsen, auk þeirra Carl-Henning Pedersen og Else Alfelt sem komu til að setja sýninguna upp í Reykjavík. Þau hjónin dvöldu hér á landi sumarlangt, Carl-Henning í sex mánuði en Else og dætur þeirra tvær styttra. Tilgangur ferðar þeirra var einnig sá að upplifa íslenska náttúru og komast burt frá þéttbýlinu og borgarmenningunni. Þau urðu sjálf fyrir miklum áhrifum af íslenskri náttúru þótt hún speglist ekki með beinum hætti í verkum þeirra. Else miðlar upplifun sinni af litbrigðum fjallsins og himinsins og myndir Carl-Hennings er eins konar ævintýra- og furðuveröld sem alltaf stóð honum nær, hvert sem hann fór. Á sýningunni í Listasafninu á Akureyri getur að líta hluta af þeim myndum sem Carl-Henning og Else Alfelt máluðu á Íslandi þetta sumar, ásamt olíu-, krítar- og vatnlitaverkum eftir Svavar Guðnason og höggmyndum úr tré eftir Sigurjón Ólafsson frá þessum tíma, sem byggja á svipuðum hugmyndum. Auk þess er á sýningunni syrpa af myndum sem Carl-Henning teiknaði með túss á pappír þegar hann vann að skreytingu tímaritsins Helhesten.

Bláa blómið í hrauninu

Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012


NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »