Sjónlistamiðstöðin » Dröfn Friðfinnsdóttir 1946 –2000 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

Dröfn Friðfinnsdóttir 1946 –2000

28. október – 17. desember

drofn

Þann 28. október opnaði yfirlitssýning á verkum Drafnar Friðfinnsdóttur (1946-2000) í Listasafninu á Akureyri. Dröfn lét mikið að sér kveða í íslensku listalífi og haslaði hún sér völl í einum erfiðasta geira grafíklistarinnar, tréristunni. Á stuttum en afkastamiklum ferli vann hún fjölmargar tréristur sem marka henni mikla sérstöðu í sögu íslenskrar grafíklistar.

Ung að árum stundaði Dröfn nám við Myndlista- og handíðaskólann í Reykjavík. Eftir eins árs skólavist gerði hún hlé á námi sínu og fluttist til Akureyrar þar sem hún helgaði líf sitt eiginmanni og börnum þó hún fengist við listsköpun sína í frístundum. Í upphafi níunda áratugarins settist Dröfn aftur á skólabekk og nam við Myndlistaskólann á Akureyri. Hún var meðal fyrstu nemanda sem útskrifuðust þaðan árið 1987. Sama ár sigldi hún til Lahti í Finnlandi þar sem hún þróaði list sína enn frekar og tréristan fór að leika aðalhlutverk í hennar listsköpun. Dröfn sneri heim til Íslands árið 1988 sem fullþroskuð listakona. Hún var iðin við sýningarhald þennan rúma áratug sem hún átti eftir ólifaðan, hélt tíu einkasýningar og tók þátt í á fjórða tug samsýninga. Verk hennar, öll hugsun og aðferð, þóttu óvenju heilsteypt og gagnrýnendur sögðu fyrstu sýningar hennar metnaðarfullar og furðulega lausar við allan byrjandabrag

Í tengslum við sýninguna var gefin út vegleg bók á vegum aðstandenda Drafnar. Hér að neðan eru tenglar á efni úr bókinni:

Aðfaraorð – Hannes Sigurðsson – Introduction

Á vegum leyndardómsins – Aðalsteinn Ingólfsson – Mysterious Journey

Norðurlandsins tæra virkt – Bragi Ásgeirsson – The Enchanting Lucidity of the North

Myndhópurinn – Kristín Geirsdóttir
The Art Group – Bertina Knudsen

Dröfn í Pidot96Gästabud – Jórunn Sigurðardóttir – Dröfn in Pidot96Gästabud

Lífshlaup og merkisdagar
Life and significant times

Ferilskrá/Résumé

Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012


NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »