Sjónlistamiðstöðin » Skrímsl – monsters 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

skrymsl

2. júlí – 21. ágúst

Sumarsýning Listasafnsins, sem var opnuð laugardaginn 2. júlí, fjallar um ófreskjur og kynjaverur af öllum gerðum í íslenskri myndlist. Sýningarstjóri að þessu sinni er Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur sem var beðin að varpa sýn sinni á ákveðið þema að eigin vali og gera grein fyrir máli sínu.

„Mér er ómögulegt að átta mig á hrifningu minni á skrýmslum og afskræmum hverskyns, en hugsa stundum með sjálfri mér að nafn mitt, Úlfhildur, hafi ekki beint gefið mér mikið val. Hvernig sem á málið er litið er niðurstaðan sú sama, mér finnst skrýmsli skemmtileg. Kóngulær, slöngur, leðurblökur og skriðdýr, öll voru þessi kvikindi í miklu uppáhaldi hjá mér þarsem ég sat hjá afa og skoðaði hina ríkulega myndskreyttu Pictorial Encylopedia of the Animal Kingdom, níðþunga í svörtu bandi… En hvað með aumingja skrýmslið? Sjálfa óvættina? Er ég ekki búin að draga úr henni tennurnar með þessari taumlausu gleði? Skrýmsl er almennt tengt ótta og skelfingu, árásargirni og illsku. Skrýmslið er andstæða mennskunnar, það þrífst á manninum, bókstaflega, því flest skrýmsl eru mannætur, og í yfirfærðri merkingu á ótta mannsins,“ segir Úlfhildur meðal annars í grein sinni.

„En hver er þá þessi ógn og hversvegna skyldi hún endilega vera eftirsóknarverð? Ég á svar við þessu (eins og öllu þegar kemur að skrýmslum); ógn skrýmslisins felst í því að minna okkur á að hið ‘rétta’ viðmið, viðmiðið sem skrýmslið er afskræming á, er alltaf í hættu. Normið er í raun ekki til, það er bara búið til og það er skrýmslið sem býr það til. Tilvera skrýmslisins gerir hvorttveggja í senn að staðfesta að til sé eitthvað ‘rétt’ viðmið, eitthvað norm og form sem það er afmyndun á, og að ógna þessu normi, því ef normið er háð tilvist skrýmslisins, tjah, þá er allur strúktúrinn orðinn svoldið viðkvæmur, því eins og áður sagði er það aðalsmerki skrýmsla að vera óreiðukennd og óútreiknanleg — og þarmeð ólíkleg til að kæra sig um að leika sitt borgaralega hlutverk… Þannig má segja að birting skrýmslisins sé ávallt einskonar áminning.“

Sýningin mótaðist annars vegar af eigin hugmyndum Úlfhildar og hins vegar af úrvali verka í eigu Listasafns Reykjavíkur og Listasafni Íslands. Einnig var leitað til einstakra listamanna sem lögðu til verk í þetta skrýmslasafn. Á sýningunni eru verk eftir 23 listamenn, en þeir eru: Alfreð Flóki, Ásgrímur Jónsson, Ásmundur Sveinsson, Brynhildur Þorgeirsdóttir, Dunganon, Erró, Finnbogi Pétursson, Gabríela Friðriksdóttir, Gunnar Örn Gunnarsson, Hulda Hákon, Jón Gunnar Árnason, Kristín Gunnlaugsdóttir, Magdalena Kjartansdóttir, Magnús Kjartansson, Magnús Tómasson, Margrét Jónsdóttir, Olga Bergmann, Ólöf Nordal, Sigurjón Ólafsson, Sissú (Sigþrúður Pálsdóttir), Sóley Eiríksdóttir, Valgerður Guðlaugsdóttir og Þorri Hringsson.

Óvættir og afskræmingar – Greinargerð Úlfhildar Dagsdóttur um sýninguna

Opnunarræða Úlfhildar Dagsdóttur

Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012


NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »