GABRÍELA FRIÐRIKSDÓTTIR OG MATTHEW BARNEY
14. maí – 5. júní
Á sunnudaginn kl. 11 um morguninn verður opnuð samsýning á nýjum verkum eftir bandaríska ofurstirnið Matthew Barney og Gabríelu Friðriksdóttur, en hún verður fulltrúi Íslands á Feneyjar-tvíæringnum í sumar sem kalla mætti Ólympíuleika myndlistarinnar. Ástæðan fyrir þessum óvanalega opnunartíma er sú að sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík og mun fjöldi erlendra blaðamanna og gagnrýnenda verða viðstaddir opnunina, ásamt forseta Íslands, menntamálaráherra og borgarstjóranum í Reykjavík. Boðið verður til dögurðar í hlaðvarpanum og sér Einar Geirsson landsliðskokkur á Karólína Restaurant og hans fólk um veitingarnar. Yfirskrift myndlistarhluta Listahátíðar er tími, rými, tilvera.
Gabríela sýnir í miðsalnum verkið Operazione oesophagus (latína: aðgerð á vélinda) sem var unnið sérstaklega fyrir Listasafnið með hliðsjón af framlagi Matthew Barney, en það samanstendur af teikningum og málverkum, skúlptúr og myndbandsverki á þremur skjám. Í austursal safnsins mjá sjá myndbandið Hoist eftir Matthew Barney á stórum plasmaskjá og er hér um frumsýningu á verkinu að ræða. Hins vegar getur að líta sérstaka útgáfu á kvikmyndinni De Lama Lâmina (portúgalska: Úr leðju blað) í vestursal safnsins sem Barney gerði fyrir sýninguna. Auk þess eru skúlptúrar, teikningar og ljósmyndir eftir Barney á sýningunni sem spruttu út frá áðurnefndum verkum.
Þegar þau komu saman fyrst til að ræða undirbúninginn fyrir þessa sameiginlegu sýningu ákváðu þau að vinna út frá orðunum mold, gubb og slím og höfðu þau að leiðarljósi við vinnslu verkanna. Segja má að bæði Barney og Gabríela komi til dyra eins og þau eru klædd; fígúran sem bregður fyrir í skúlptúr og myndbandi Gabríelu er nánast nakin og skartar ofvöxnum og ákaflega loðnum sköpum; í þessu verki breytist vélindað eiginlega í sögupersónu, stígur út úr líkamanum og fer gubbandi á stjá. Gabríela ýkir kvensköpin en Barney notar aftur á móti mjög raunsæja lýsingu á hinum reista lim, samfarataktinum og að lokum sáðfalli aðalpersónunnar, Greenman, í Hoist. Slímugur vökvi kemur út um líkamsop á efri hluta búksins hjá Gabríelu en hið sama gerist neðan við mitti hjá Matthew Barney. Áherslan á ýkt kynfæri, getnað og líkamsop vísar í þann sterka frumkraft sem drífur lífið áfram, sjálfan lífsneistann.
Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012
Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.