Sjónlistamiðstöðin » Erró 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

ERRÓ OG LISTASAGAN

12. mars – 6. maí 2005

Laugardaginn 12. mars var opnuð sýning á verkum Errós. Meginuppistaðan á sýningunni eru átta risastór málverk úr myndröðinni Listasagan sem gerð voru 1991-1992. Til að gefa innsýn í vinnuaðferðir og hugmyndaheim listamannsins má einnig sjá á sýningunni fjögur verk Errós þar sem hann klippir saman myndir annarra listamanna frá ýmsum tímabilum 20 aldar. Erró er mjög afkastamikill listamaður og málar yfirleitt í seríum eða myndaflokkum. Viðfangsefni mynda hans er líka ótrúlega fjölbreytt: Pólitík og samfélagsleg málefni hafa löngum verið eitt megin viðfangsefni verka Errós ásamt tilvísunum í lista- og menningarsöguna. Sýningin er gerð í samvinnu við Listasafn Reykjavíkur.

Stiklur úr viðburðarríkri ævi Errós

Listaverk annarra skipta miklu máli fyrir óþrjótandi hungur mitt. Eftirlætislist mín: Grunewald, Bosch, Brueghel, Altdorfer, Durer, Vermeer, barokklist, indversk hof, býsönsk mósaík, Van Gogh, Picasso, Dali, Léger, kínverskur sósíalrealismi. Listann má lengja í það óendanlega. — Erró.

Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012


NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »