Inúítinn á selveiðum er betri fyrirmynd en stórborgarbúinn sem ver drjúgum hluta hvers dags við að hlaupa milli neðanjarðarlestanna.“ – Patrick Huse
Laugardaginn 30. október var opnuð sýningin Encounter sem samanstendur af málverkum, ljósmyndum, hreyfimyndum og textum og fjallar um norðlægar slóðir Kanada, samband Inúíta við náttúrna og viðhorf og áhrif vestrænnar menningar á þetta samband. Norðmaðurinn Patrick Huse hefur í mörg ár unnið við túlkun landslags út frá tengslum náttúru og umhverfi norður Skandinavíu; Íslandi, Grænlandi og í þessu tilfelli Nunavut nyrst í Kanada. Hreinræktaðar landslagstúlkanir hans hafa snúist í þjóðfélagslýsingar sem sýna að það er félagsleg hlið á öllu landslagi. List og þjóðfélagsádeila hafa að hans mati færst inn á hið víðtæka svið menningar sem áður var eftirlátið rannsóknum mannfræðinga. Listræn stefna hans hefur augljóst markmið; tjáskipti og gagnrýni. Verkefnið fjallar í sjálfu sér ekki um þau vandamál sem hinir innfæddu þurfa að glíma við, þetta er gagnrýni á hinn vestræna raunveruleika. Með því að beina athyglinni að hefbundinni túlkun Inúíta á náttúru og umhverfi afhjúpar hann mótsögnina í vestrænu viðhorfi til þessarar menningar. Þannig verða aðstæðurnar á Norðurheimskauti og norðlægum slóðum myndlíking fyrir stærra alþjóðlegt vandamál.
Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.