Sjónlistamiðstöðin » Kenjarnar – Francisco de Goya 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

Laugardaginn 15. maí var opnuð sýning í Listasafninu á Akureyri á einu frægasta listaverki eins frægasta listamanns heimslistasögunnar, Kenjunum eða Los Caprichos eftir spænska snillinginn Francisco de Goya (1746-1828). Jafnframt er þetta í fyrsta sinn sem Goya er sýndur á Íslandi. Sýningin kemur frá hinu Konunglega svartlistasafni Spánar, Calcografía Nacional í Madríd, og er hún framlag Akureyrarbæjar til Listahátíðar í Reykjavík. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og Javier Blas, forstöðumaður Svartlistasafnsins, opnuðu sýninguna. Spænski flamenco dansarinn Minerva Iglesias lék listir sínar á opnuninni og Guðbergur Bergsson rithöfundur hélt erindi um Kenjarnar í Deiglunni á vegum safnsins.

Aðeins örfá frumþrykk af þessari myndröð eru til í heiminum sem samanstendur af áttatíu ætingum frá árinu 1799. Konunglega svartlistasafnið varðveitir allar upprunalegu koparplöturnar og eru frumþrykk eftir meistara Goya, frá fyrstu útgáfu þeirra í Madríd árið 1799, hér til sýnis. Fyrsta útgáfan var sú eina sem Goya leit eftir persónulega, en þau eintök hafa týnst nánast öll. Þetta er auðvitað virtasta og verðmætasta útgáfan og er hana aðeins að finna í nokkrum helstu listasöfnum heimsins. Svartlistasafnið á Spáni á einnig aðra röð með handskrifuðum athugasemdum Goya. Hin röðin var send til Íslands, en þetta er mikilvægasta safn svartlistarmynda í eigu stofnunarinnar, það langvirtasta, sem sárasjaldan er lánað út. Koparstungur fyrstu útgáfunnar varðveita fyllilega þróttmikla línuna í ætingunni og ríkuleg blæbrigði myndflatarins. Vegna hins sögulega mikilvægis verksins tók Svartlistasafnið þá ákvörðun fyrir margt löngu að innsigla plöturnar til að koma í veg fyrir að fleiri eintök yrðu gerð.

Auk frumþrykkjanna eru til sýnis flennistórar andlitsmyndir úr Kenjunum, þ.e.a.s. andlit sem Goya teiknaði á stærð við mannsnögl og stækkuð hafa verið stafrænt upp í næstum fjóra fermetra og þrykkt á eðalpappír. Listasafnið á Akureyri er fyrsta safnið í heiminum sem hýsir samhliða sýningar á Kenjunum og þessum andlitsmyndum. Þetta eru andlit fávisku, hégóma og drambsemi, djöfla og púka, tekin úr samhengi þar sem við blasir tjáningarmáttur ásjónunnar. Þessar myndir ganga nú sem sérsýning sem nefnist “Francisco de Goya: Samviskan dregin upp” og hefur hún farið um víða veröld og fengið góða dóma í mörgum löndum Evrópu og Ameríku. Listasafnið á Akureyri fékk þessa nútímaútgáfu til sýnis auk frumþrykkjanna 80, sem aldrei áður hafa sést saman, ekki einu sinni á Spáni.

Kenjarnar eru höfuðverk spænskrar svartlistar allra tíma og teljast til þeirra verka sem mest áhrif hafa haft á heimslistasöguna. Saga nútímamyndlistar er talin byrja með Goya og skipa Kenjarnar þar einstakan sess; hann var síðasti “gamli meistarinn” og sá fyrsti nútímalegi. Þessar áttatíu koparstungur eru grundvallarheimild bæði til að kynnast sköpunarferlinu í myndlist Goya og spænsku samfélagi í lok 18. aldar af sjónarhóli upplýsingarstefnunnar.

Kenjar Francisco de Goya >>>
eftir Javier Blas, forstöðumann Svartlistasafns Spánar

Ávarp menntamálaráðherra, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, við opnun sýningar á verkum Francisco Goya í Listasafni Akureyrar 15. maí 2004.

Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012


NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »