Sýning Boyle fjölskyldunnar var opnuð á Akureyrarvöku, laugardaginn 28. ágúst kl. 15, af forsætisráðherrafrú Bretlands, Cherie Blair, og sendiherra Bretlands á Íslandi, Alp Mehmet.
Boyle-fjölskyldan samanstendur af fjórum listamönnum, þeim Mark Boyle (f. í Glasgow 1934), Joan Hill (f. í Edinburg 1931) og börnum þeirra Sebastian (f. 1962) og Georgiu (f. 1965). Þau vinna saman, sem einn listamaður, að öllum verkefnum sínum. Þau voru fulltrúar Bretlands á Feneyjartvíæringnum 1978 og eru einu skosku listamennirnir sem hafa haldið einkasýningu á breska sýningarsvæðinu. Tvær síðustu stórsýningar þeirra í Bretlandi voru haldnar í Hayward-galleríinu í London 1986 og í Skoska nútímalistasafninu í Edinborg 2003.
Mark og Joan gerðu fyrstu jarðsneiðina (nákvæma eftirmynd af jarðsvæði) árið 1964. Fjórum árum seinna hófu þau risavaxið verkefni sem nefnist Ferð að yfirborði jarðar. Takmark þeirra var að gera nákvæma eftirmynd af 1000 hlutum yfirborðs jarðar, sem væru valdir af handahófi. Ævintýrið byrjaði þegar áhorfendur voru beðnir um að kasta pílum í risastórt heimskort til að velja staðina; 70% af pílunum lentu í sjó, en sú fyrsta stakkst í Ísland. Í framhaldinu ferðuðust þau til margra landa, borga og afskekktra staða, og gerðu ofurraunsæja lágmynd af því svæði þar sem pílan hafði lent. Aðferðin sem þau nota við að endurskapa jarðsvæðin svona nákvæmlega, oft úr óstöðugum efnum eins og sandi, mold og ís, er vel varið leyndarmál. Fjölskyldan hefur aldrei komið til Íslands, áfangastaðar fyrstu pílunnar, eða haldið þar sýningu fyrr en nú.
Boyle fjölskyldan skipar mikilvægan sess í listasögu Bretlands og raunar í sögu alþjóðlegrar myndlistar. Mark og Joan eiga sér langan feril að baki og hafa t.d. unnið með listamönnum á borð við Jimmy Hendrix og Dieter Roth. Með Hendrix bjuggu þau til eitt vinsælasta “skynvíkkunarljósasjó″ skemmtistaðanna, sem bregður fyrir í bíómyndum hippatöffarans Austin Power. Síðan á endurreisnartímanum hefur engin fjölskylda starfað að listinni sem ein heild. Það brýtur í bága við allar viðteknar venjur að framúrstefnulistamenn starfi sem eitthvað vísitöludæmi. Hér afsannast sú kenning að listamenn þurfi að kúldrast einir uppi á hanabjálka til að láta sterkt að sér kveða.
Listi yfir verkin á sýningunni.
Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.