Sjónlistamiðstöðin » Bjarni Sigurbjörnsson – Opus & Svava Björnsdóttir – Arcus 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

Fyrstu sýningar ársins 2004 voru opnaðar laugardaginn 17. janúar kl. 15. Hér er sjónum beint að tveimur öflugum íslenskum samtímalistamönnum, Bjarna Sigurbjörnssyni og Svövu Björnsdóttur, og stöðu óhlutbundinnar myndlistar eins og greinist hvað skýrast í abstrakt expressionisma og harða geómetríu, eða tilfinningar og vitsmuni eins og gjarnan er litið á það. Öll hugsun er óhlutbundin þar til henni hefur verið umbreytt með athöfn í einhvern áþreifanlegan hlut eða hegðun. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að sérhver hlutur er abstrakt eða afstæður í innsta eðli, býsna torskilinn þegar öllu er á botninn hvolft. Geómetríuverk Svövu bera því ekki vott um næmleysi frekar en expressionismi Bjarna er laus við alla skynsemi. Hér kallast á tvær meginleiðir að sama markmiði, sem er að miðla meitlaðri hugsun sem ekki verður tjáð með öðrum hætti. Verkin voru öll unnin fyrir sýninguna í Listasafninu á Akureyri og eru verk Bjarna í miðsal- og austursal en verk Svövu eru í vestursal.

Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012


NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »