Laugardaginn 13. mars kl. 15 var sýningin „Allar heimsins konur“ opnuð í Listasafninu á Akureyri. Á sýningunni eru 176 verk eftir 176 konur frá jafnmörgum löndum, en það er næstum hvert einasta land í heiminum sem hlotið hefur viðurkenningu sem sjálfstætt ríki. Verkefnið er unnið í samvinnu við bandarísku listakonuna Claudiu DeMonte og er hugsað sem fagnaðarveisla ólíkra lífshátta og lífsreynslu fremur en einhliða ádeila á karlaveldið. Jafnframt því sem sýningin veitir okkur sýn inn í hugarheim fjölda kvenna og er henni ekki síst ætlað að varpa ljósi á fjölbreytileika okkar jarðarbúa. Sýningin er sérstaklega vel fallin til safnfræðslu fyrir skólafólk á öllum aldri, út frá ótal sjónarhornum, fyrir utan að bjóða upp á staðgóða kennsla eða upprifjun í landafræði. Hvert verk er ekki aðeins merkt höfundi sínum, heldur er þar einnig að finna skoðanir hans í flestum tilvikum og upplýsingar um viðkomandi land, ásamt heimsmynd og landakorti.
Meðan heimurinn snýst eftir Arlene Raven
Í vestursal Listasafnsins getur hins vegar að líta innsetningu eftir Önnu Líndal, Halló Akureyri! Tjaldvagn í fullum skrúða tekur á móti áhorfendum, en andspnænis honum er til sýnis myndband af framkvæmdum á virkjunarsvæði Kárahnjúka þar sem hvín og syngur í díselvélum, stálhjólum og viðvörunarbjöllum. Innsetningin minnir á að það er iðnvæðingin í landinu sem getur af sér þær allsnægtir sem eru nauðsynlegar til að borgararnir geti keypt niðurfellanleg heimili á hjólum sem þeir ímynda sér að geri þeim kleift að flýja undan erli og streitu daglegs lífs á okkar tímum.
Pokasjóður styrkir „ Allar heimsins konur“ og spyr áhorfendur spjörunum úr. Tólf glæsilega listaverk í verðlaun fyrir réttu svörin. Sjá úrslit >>
Aðflutt landslag – Pétur Thomsen
Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012
Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.