Laugardaginn 15. mars kl. 15 var sýningin „Undir fíkjutré: Alþýðulistir og frásagnarhefðir Indlands“ opnuð í Listasafninu á Akureyri. Þetta er í fyrsta sinn sem indversk myndlist er kynnt með jafn víðfeðmum hætti hér á landi. Sýningin er sérstaklega samansett af Listasafninu á Akureyri með aðstoð próferssors Susan S. Wadley við Syracause-háskóla og koma listaverkin víða að. Í grunninn er sýningin fengin frá einkasöfnurum og opinberum stofnunum í Syracause í New York-fylki, en Mithila-málverk koma að mestu frá mannfræðideild Berkeley-háskóla í Kaliforníu. Þá koma ljósmyndir frá Sepia-galleríinu á Manhattan, gömul póstkort frá London og ýmsir aðrir munir frá Delhi og Bombay á Indlandi.
Sýningin samanstendur af málverkum, höggmyndum, keramík, skuggabrúðum, vefnaði, ljósmyndum, hljóðfærum, póstkortum og bíómyndum, svo eitthvað sé nefnt. Öll þessi verk byggjast að einhverju leyti á söguljóði hindúa, Ramayana sem samanstendur af 24.000 erindum. Það er talið ritað á tímabilinu 500 til 200 f.Kr, eignað skáldinu Valmiki.
Frásagnarhefðir Indlands eru aldagamlar en flest verkanna eru frekar ný af nálinni; þau yngstu aðeins nokkurra vikna, hin elstu um áttrætt. Indland er land sagnaskáldskapar og munnmæla enda setja Indverjar sögur sínar ekki aðeins í orð, heldur í margvísleg listform. Listformin minna áhorfendur á sögur af gyðjum og guðum sem sanntrúaðir hindúar dýrka enn í dag, en líka þær breytingar sem hafa átt sér stað í veröldinni á síðustu tveimur öldum. Þetta listform breytist og þróast því stöðugt.
opnunarræða Hannesar Sigurðssonar
Grein um sýninguna eftir Susan S. Wadley
Article about the exhibition by Susan S. Wadley
Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.