Sjónlistamiðstöðin » Þjóð í mótun 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

Laugardaginn 30. ágúst kl. 15 var blásið í afmælislúðra í Listagilinu á Akureyri. Tilefnið er tvöfalt. Listasafnið á Akureyri, eitt hið yngsta sinnar tegundar á landinu, varð tíu ára, og Þjóðminjasafn Íslands, elsta safn lýðveldisins, varð hvorki meira né minna en 140 ára. Sýningin, sem unnin er í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands, ber heitið Þjóð í mótun: Ísland og Íslendingar fyrri alda“.

Í vestursal safnsins sýna Erla S. Haraldsdóttir, nýjasti verðlaunahafi Listasjóðs Pennans, og Bo Melin hvernig Akureyrarbær gæti litið út í óræðri framtíð ef þar byggju í kringum 700 þúsund manns, en sú sýning ber heitið Abbast uppá Akureyri“.

Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012


NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »