Sjónlistamiðstöðin » Meistarar formsins 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

Laugardaginn 28. júní var sýningin „Meistarar formsins: Úr höggmyndasögu 20. aldar“ opnuð í Listasafninu á Akureyri, en hún er gerð í samvinnu við Ríkislistasafnið í Berlín (Nationalgalerie Berlin). Líklega hefur aldrei áður verið haldin sýning á höggmyndum á Íslandi sem endurspeglar á jafn hnitmiðaðan og yfirgripsmikinn hátt þróun vestrænnar nútímamyndlistar og þessi sýning í Listasafninu á Akureyri. Á sýningunni er íslenskum höggmyndalistamönnum jafnframt stillt upp í samhengi við þá sem heimsbyggðin þekkir og voru stefnumótandi, hver á sínum tíma.

Alls eru verk eftir 43 listamenn á sýningunni, en þar ef eru ellefu Íslendingar, og telja verkin um hundrað. Listamennirnir eru: Alberto Giacometti, Alexander Archipenko, Alfred Lörcher, Aristide Maillol, Auguste Renoir, Axel Lischke, Ásmundur Sveinsson, Bogomir Ecker, Carl Andre, Daniel Buren, Donald Judd, Edgar Degas, Einar Jónsson, Emy Roeder, Ernst Barlach, Ewald Mataré, Finnbogi Pétursson, Fritz Schwegler, Georg Kolbe, Gerður Helgadóttur, Henri Laurens, Henry Moore, Hreinn Friðfinnsson, Jón Gunnar Árnason, Karl Hartung, Karl Schmidt-Rottluff, Käthe Kollwitz, Kristján Guðmundsson, Magnús Pálsson, Manolo, Marino Marini, Per Kirkeby, Raffael Rheinsfeld, Reiner Ruthenbeck, Renée Sintenis, Richard Long, Rosemary Trockel, Rudolf Belling, Sigurður Guðmundsson, Sigurjón Ólafsson, Sol LeWitt, Walter De Maria og Þorvaldur Þorsteinsson

Sendiherra Þýskalands, Dr. Hendrik Dane, og yfirsýningarstjóri Hamburger Bahnhof-safnsins í Berlín, sem heyrir undir Ríkislistasafnið, Britta Schmitz, voru viðstödd opnun sýningarinnar. Þá hefur verið gefin út 90 síðna bók á íslensku og ensku um listamennina og verkin á sýningunni.

Öll erlendu verkin nema eitt eru fengin að láni frá Ríkislistasafninu í Berlín. Galerie Vostell í Berlín lagði hér hönd á plóg með því að lána 160 kg „ferðatösku“ Alex Lischke (f. 1956) sem gerð er úr polyester og inniheldur handsprengjur, dínamit, skotvopn og drápshnífa – öll grunnáhöld hryðjuverkamannsins nú á dögum.

Verk íslensku listamannanna koma víða að, frá Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Íslands, Listasafni Kópavogs, listasöfnum Sigurjóns Ólafssonar og Einars Jónssonar og Gallerí i8.

Sýningin hlaut styrk úr Menningarborgarsjóði og lýkur henni miðvikudaginn 20. ágúst.

Sýningin var einnig sett upp í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar og hér má lesa ávarp forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar við opnunina 30. ágúst 2003

Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012


NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »