Laugardaginn 10. maí kl. 15 var farandsýningunni „Inn og út um gluggann: Ísland, Grænland og Færeyjar skoða hvert annað“ ýtt úr vör í Listasafninu á Akureyri, en frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, opnuðu hana.
Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.