Laugardaginn 8. nóvember kl. 15 voru tvær sýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri. Í austur- og miðsal safnins sýnir Eggert Pétursson málverk undir heitinu Blómróf sem spannar tímabilið frá 1988 fram á þennan dag, en í vestursal hefur kanadíski listamaðurinn Aaron Michel komið fyrir innsetningu á skúlptúrum og teikningum sem hann kallar Minningar og heimildasöfn
Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012
Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.