Sjónlistamiðstöðin » aftökur og útrímingar 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

Laugardaginn 18. janúar kl. 15 hefur Listasafnið á Akureyri sitt tíunda starfsár með trukki og dýfu en þá verða opnaðar þrjár sýningar sem bera yfirskriftina AFTÖKUR & ÚTRÝMINGAR. Verkin á sýningunum koma frá Manhattan, Indiana-fylki, Berlín og Bochum í Þýskalandi. Af þessu tilefni hefur verið gefin út 70 síðna bók með umfjöllun um verkin og listamennina á sýningunum, ásamt sögulegri úttekt á dauðarefsingum á Íslandi og baráttu íslenskra homma og lesbía fyrir fullum mannréttindum.

Sýningin Hitler og hommarnir fjallar um útrýmingu samkynhneigðra á nasistatímanum. Myndlistarparið David McDermott og Peter McGough frá New York horfast hér í augu við óbærilegar staðreyndir nasistatímans og umbreyta þeim á persónulegan hátt, m.a. með því að endurgera opinberar myndir af Hitler og skrifa nöfn og númer samkynhneigðra fórnarlamba inn á myndirnar. McDermott og McGough eru miklir sérvitringar sem lifa hálfpartinn á 19. öld og líta svo á að tíminn sé í rauninni ekki til nema sem hugtak. Í málverkum sínum flétta þeir sífellt saman nútíð og fortíð og fá áhorfandann til að mynda sér sína eigin skoðun á samhengi sögunnar.

Aftökuherbergi samanstendur af 30 ljósmyndum eftir Lucindu Devlin sem teknar voru í bandarískum fangelsum á tíunda áratugnum. Áhorfandinn fær að skyggnast inn í það rými og þrúgandi andrúmsloft sem umlykur hina dauðadæmdu fanga. Þessi sýning var framlag Bandaríkjamanna á Feneyjatvíæringnum 2001 og vakti mikla athygli.

Hinstu máltíðir
er döpur veisla sem þó vekur upp djúpar tilfinningar. Hér teflir Barbara Caveng, Svisslendingur búsettur í Berlín, fram sjónrænum matseðlum dauðafanga sem mega kýla á sér vömbina áður en þeir eru líflátnir svo fremi sem máltíðin kostar ekki meira en 50 dollara. Til hliðar við þessa innsetningu má svo draga fram skýrslur hvers fanga fyrir sig og upplifa það ferli sem fangarnir ganga í gegnum áður en stundin rennur upp. Dauðafangar verða oftast að bíða árum saman eftir aftökunni meðan
mál þeirra velkjast um í dómskerfinu.

Sýningin stendur til 9. mars 2003.

Dauðarefsingar á Íslandi

Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012


NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »