Sjónlistamiðstöðin » Skipulögð hamingja 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

Laugardaginn 13. apríl kl. 15 var sýningin „Skipulögð hamingja: Rússnesk myndlist 1914-1956“ opnuð í Listasafninu á Akureyri, en hún er sérstaklega unnin í samvinnu við Fagurlistasafnið í Arkhangelsk sem er eitt af stærstu listasöfnum Rússlands. Sýningin fjallar um gríðarlegt átakatímabil í sögu Rússlands. Eftir Októberbyltinguna 1917 þegar bolsévíkar náðu yfirráðum blómstraði hvers konar nýsköpun meira en nokkurn tíma áður. Listamaðurinn átti að vera „verkfræðingur sálarinnar” sem lýsti „byltingakenndri umbreytingu veruleikans”. Alþjóðahyggja og framúrstefnuhreyfingar 20. aldar á borð við súprematisma, konstrúktívisma og kúbisma stönguðust síðar meir á við hugmyndafræði flokksins og voru kæfðar af mikilli hörku.

Frá 1934 til dauða Stalíns árið 1953 einkenndust sjónlistirnar af persónudýrkun og tröllvöxnum verkum þar sem leiðtogar og verkalýðshetjur eru hafnar upp í þeim anda sem kenndur er við sósíalrealisma eða „þjóðfélagslegt raunsæi”. Milli þessara tveggja ólíku hreyfinga, framúrstefnunnar og sósíalrealismans, er að finna hina almennu þróun rússneskrar myndlistar á umræddu tímabili eins og fram kemur á sýningunni. Vísindi, verksmiðjur og vöxtur var hinn þríeini guð og listamennirnir tóku þátt í að byggja upp nýjan sósíalískan heim af brennandi áhuga um leið og þeir túlkuðu þær væntingar, drauma og tálsýnir, sem blunduðu undir niðri. Þegar Stalín lést féll einræðisstjórn hans og listamenn fengu aftur aukið athafnafrelsi. Þremur árum síðar fordæmdi Khrústsjov Stalín í leyniræðu sem fræg er orðin.

Samhliða sýningunni verða kynntar kvikmyndir eftir þrjá rússneska höfunda í samvinnu við MÍR, Menningartengsl Íslands og Rússlands: Sergei Eisenstein (Verkfall, 1925), Vsevolod Púdovkín (Endalok Skt. Pétursborgar, 1927) og Dziga Vértov (Maður með kvikmyndavél, 1929). Myndirnar verða sýndar kl. 14.30 alla daga nema mánudaga. Einnig er hægt að óska eftir sérstökum sýningum.

Menntamálaráðherra, Tómas Ingi Olrich, opnaði sýninguna. Þá voru Alexander Klochko, ræðismaður Rússlands á Íslandi, og Zoja Kúletsjova frá Fagurlistasafninu í Arkhangelsk viðstödd opnunina.

Meira um sýninguna

Verkin  á sýningunni

Rússland 1917 – 1953 Eftir Árna Bergmann

Þrjár rússneskar kvikmyndir og höfundar þeirra

Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012


NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »