Sjónauki III - frá poppi til fjölhyggju. Íslensk myndlist frá 1965 – 2000
Ofangreint tímabil er án efa eitt það frjóasta og um leið róstusamasta í íslenskri myndlistarsögu. Við upphaf þess sneri yngri kynslóð listamanna baki við landslagshefðinni og abstraktlist sjötta áratugarins og gaf hugmyndum um „frumsköpun“, „andagift“ og „mannbætandi áhrif“ sköpunarverksins langt nef. Í staðinn hóf hún til vegs hið hversdagslega, ólistræna, tilviljunarkennda og jafnvel hið fáránlega. Um 1982 varð eins konar myndlistarsprenging í þjóðfélaginu samfara pönkbylgjunni og efnahagslegri óvissu. Ungir listamenn tóku aftur upp pentskúfa, en undir öðrum formerkjum en áður. Verk þeirra voru villt, brotakennd, ágeng og vísvitandi óvönduð og þessi bylgja hafði einnig í för með sér endurnýjun landslagsmálverksins. Lokaáratugur 20. aldar er tímabil fjölhyggju í íslenskri myndlist. Gáttir opnuðust til allra átta með tilkomu Netsins og hefðbundin skil milli listgreina riðluðust. Á Sjónauka-sýningum Listasafnsins á Akureyri er fræðimönnum boðið að sýna myndverk út frá eigin forsendum og rökstuðningi. Hér er brugðið upp yfirlitsmynd af þessum viðburðarríku árum í íslenskri myndlist með tilvísun til verka í eigu Listasafns Reykjavíkur og Listasafns Íslands. Umsjónarmaður Sjónauka að þessu sinni er Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur.
Opið bréf til Odds Helga Halldórssonar fulltrúa L-listans í bæjastjórn Akureyrar, frá Hannesi Sigurðsyni, forstöðumanni Listasafnsins á Akureyri: Akureyri 28 janúar 2002
Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012
Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.