Rembrandt og samtíðarmenn hans
Laugardaginn 14. september kl. 15 var sýningin “Rembrandt og samtíðarmenn hans; hollensk myndlist frá 17. öld” opnuð í Listasafninu á Akureyri. Þetta er í fyrsta sinn sem sýning frá gullöld hollenskrar myndlistar kemur hingað til lands og eru verkin fengin að láni frá Lettneska heimslistasafninu í Ríga. Á sýningunni er að finna málverk, ætingar og koparstungur sem sýna flest einkenni á þeirri myndlist sem stunduð var í Hollandi á 17. Á sýningunni eru samtals fimmtán olíumálverk og tuttugu og sjö grafíkverk. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, og forstöðumaður Lettneska heimslistasafnsins, Daiga Upeniece, voru viðstödd opnun sýningarinnar. Af þessu tilefni var gefin út bók sem hefur að geyma myndir og umfjöllun um öll verkin á sýningunni, ásamt greinum eftir Daigu Upeniece, Ólaf Gíslason og Hannes Sigurðsson. Menningarsjóður Sjóvá-Almennra, Auglýsingastofan Stíll og Harpa Sjöfn styrkja sýninguna.
Gullöld hollenskrar myndlistar
Hið hverfula yfirborð heimsins
Olga Bergmann og Doktor B : RÆKT
Samhliða sýningunni “Rembrandt og samtíðarmenn hans” var í vestursal Listasafnsins opnuð sýningin “Rækt” með völdum verkum eftir Olgu Bergmann og Doktor B. Undanfarin misseri hafa verk Olgu að mestu leyti fjallað um Doktor Bergmann sem er eins konar hliðstæða eða “alter ego” Olgu. Rannsóknarstofa doktorsins og tilraunir hans tengjast áhuga Olgu á þeim furðulegu möguleikum sem erfðaverkfræði og klónun munu bjóða upp á í framtíðinni þegar veruleikinn og ímyndunaraflið geta farið að skiptast á hlutverkum. Olga Bermann (f. 1967) er nýjasti verðlaunahafi Listasjóðs Pennans og var henni boðið að sýna í Listasafninu af því tilefni. Listasjóður Pennans heldur upp á tíu ára afmæli sitt á þessu starfsári, en markmið hans er að styrkja unga og efnilega myndlistarmenn.
Framsókn Doktors B Eftir Áslaugu Thorlacius
Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012
Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.