Laugardaginn 27. júlí kl. 15 var sýningin Milli goðsagnar og veruleika – nútímalist frá arabaheiminum“ opnuð í Listasafninu á Akureyri. Sýningunni sem hér kemur íslenskum almenningi fyrir sjónir frá Konunglega fagurlistasafni Jórdaníu í Amman er ætlað að varpa nýju ljósi á heim araba sem verið hefur svo mikið í kastljósi vestrænna fjölmiðla að undanförnu. Á sýningunni er reynt að draga upp mynd af stöðu nútímalistar í þessum heimshluta með úrvali verka eftir bæði karla og konur frá sextán arabalöndum, en þau eru: Alsír, Barein, Egyptaland, Írak, Jemen, Jórdanía, Katar, Líbanon, Líbýa, Marokkó, Palestína, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Sádi-Arabía, Súdan, Sýrland og Túnis.
Hennar konunglega hátign Wijdan Ali prinsessa, sem er doktor í íslamskri myndlist frá Lundúnaháskóla, og Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra voru viðstödd opnun sýningarinnar. Af þessu tilefni var gefin út 80 síðna bók með úrvali mynda og greinum eftir dr. Wijdan Ali, Ólaf Gíslason og Jóhönnu Kristjónsdóttur sem varpa ljósi á þróun myndlistar og ýmsa aðra þætti í sögu og menningu arabaheimsins. Sama dag og sýningin var opnuð hélt dr. Ali fyrirlestur í Deiglunni, en að honum loknum svaraði hún fyrirspurnum um allt frá arabískri myndlist til ástandsins fyrir botni Miðjarðarhafsins. Konunglega fagurlistasafnið í Jórdaníu var stofnað árið 1980 með 77 verkum, en síðan þá hefur það stækkað mjög svo nú eru þar 1800 verk eftir listamenn frá 45 þróunarlöndum. Þetta er langstærsta safn sinnar tegundar sem til er undir einu þaki.
Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012
Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.