Sjónlistamiðstöðin » Per Kirkeby og Hekla dögg jónsdóttir 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

Laugardaginn 4. ágúst var opnuð sýning á verkum danska listamannsins Per Kirkeby (f. 1938) í Listasafninu á Akureyri sem samanstendur af málverkum, einþrykkjum, teikningum og skúlptúrum frá árunum 1983-1999. Kirkeby er án efa þekktasti núlifandi myndlistarmaður Norðurlanda og er þetta hans fyrsta einkasýning á Íslandi. Sýningin er unnin í samstarfi við Michael Werner galleríið í Köln sem annast hefur öll hans kynningarmál á heimsvísu undanfarna áratugi. Það má nokkurri furðu sæta að ekki hafi fyrr verið haldin sýning á verkum Kirkeby hérlendis þar sem hann hefur löngum haft mikinn áhuga á landi og þjóð

Á sama tíma var opnuð sýning í vestursal safnsins á innsetningu eftir Heklu Dögg Jónsdóttur (f. 1969) sem nýverið hlaut verðlaun úr Listasjóði Pennans.

Opnunarræða Hannesar Sigurðssonar

Per Kirkeby: listamaður hinna fullorðnu.

Hekla Dögg Jónsdóttir og þanþol listarinnar.

Ferilskrá Heklu Daggar / Resume

Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012


NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »