Óli G. Jóhannsson – Handan við gnýinn
Kristján Davíðsson – valin verk
Laugardaginn 10. nóvember kl. 15 voru opnaðar sýningar á verkum Óla G. Jóhannssonar og Kristjáns Davíðssonar í Listasafninu á Akureyri. Sýning Óla G. er stærsta einkasýningin listamannsins fram til þessa en hann er bæjarlistamaður Akureyrar 2001/2002. Af þessu tilefni hefur verið gefin út vönduð listprentuð sýningarskrá með greinum eftir Aðalstein Ingólfsson og Hannes Sigurðsson, listfræðinga. Í vestursal safnsins er hins vegar að finna valin verk eftir Kristján Davíðsson sem spanna tímabilið frá 1967-1995 og eru þau fengin að láni frá Listasafni Reykjavíkur. Sýningarnar standa til 16. desember, 2001.
Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012
Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.