Frumherjar í byrjun 20. aldar
Laugardaginn 22. september var opnuð sýning á verkum frumherja íslenskrar myndlistar í Listasafninu á Akureyri, en sýningin er unnin í samvinnu við Listasafn Íslands. Markmiðið með henni er að gefa samandregið yfirlit yfir íslenska myndlist á fyrsta aldarfjórðungi síðust aldar, einkum með skólana í huga, þótt sýningin ætti ekki síður að höfða til allra listunnenda. Sýningin er sú fyrsta af fjórum sem Listasafnið á Akureyri hyggst standa fyrir á næstu þremur árum. Hinar sýningarnar – Módernismi í mótun, Abstraktlist og Listin eftir 1970 – munu fylgja í kjölfarið.
Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012
Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.