Laugardaginn 20. janúar var margmiðlunarsýningin DETOX opnuð í Listasafninu á Akureyri. DETOX er eitt stærsta verkefni á sviði rafrænnar myndlistar sem ráðist hefur verið í á Norðurlöndum. Á sýningunni er veruleiki nútímans túlkaður með margvíslegum tólum og tækjum sem virkja áhorfendur til þátttöku, en alls unnu sextán norskir listamenn að gerð verkanna í samvinnu við ýmsa tölvufræðinga og tæknimenn. Tilgangurinn með þessari listrænu tæknifrjóvgun er að kanna möguleika gagnvirkrar miðlunar í því skyni að ná betur til áhorfenda og brúa þannig bilið milli listaheimsins og upplýsinga- og neyslusamfélagsins. Nafnið DETOX þýðir afeitrun eða hreinsun og vísar til þess að hér er ekki einungis verið að leika sér, heldur er þetta einnig alvörugefin úttekt á þeim vandamálum sem fylgja tölvusamfélaginu – vandamálum sem við erum rétt að byrja að átta okkur á. Kjell Halvorsen, sendiherra Noregs opnaði sýninguna, en auk hans voru Anders Ringen, verkefnisstjóri Sjálfstæðishátíðarnefndar Noregs árið 2005, Marith Hope, yfirmaður sýningardeildar Riksutstillinger og Ståle Stenslie, sýningarsjóri DETOX, viðstödd opnunina.
Árið 1999 efndi Farandsýningarráð Noregs, Riksutstillinger, til samkeppni á sviði gagnvirkrar miðlunar og bárust ráðinu tugir umsókna. Úr þeim fjölda voru tíu verkefni eftir einstaka myndlistarmenn og hópa valin til endanlegrar úrvinnslu og nam heildarkostnaður við gerð sýningarinnar hátt á sjötta tug milljóna íslenskra króna. Fjórir tæknimenn frá Noregi unnu við að koma upp sýningunni sem vegur rúm átta tonn og verður eftirlitsmaður til staðar allan sýningartímann vegna þessa mikla tækjabúnaðar sem er á sýningunni. Sýningin var fyrst opnuð í Kunstneres Hus í Osló, þar sem 2000 manns sáu hana fyrsta klukkutímann, og fór hún víða um Noreg áður en hún kom hingað til lands þar sem för hennar lýkur.
Cybernetes-hópurinn
Bård A. Løftingsmo, Atle Barcley og Jens Laland
Genitalia- hópurinn
Reidar Engesbak, Torgeir Karlsen og Christian Bjørnæs
Orgdot- hópurinn
(Stein Sørlie, Olaf Havnes og Julian Lyngheim)
Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012
Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.