„Erotíkin rataði ekki inn í íslenska myndlist fyrr en húshiti var orðinn góður og almennur. Íslendingar urðu ekki allsberir fyrr en eftir tilkomu hitaveitunnar. Fyrri kynslóðir voru getnar í gegnum föt. Kynlífið var eins konar saumaskapur. Núorðið heitir það að negla og hamra”, segir Hallgrímur Helgason en hann er einn af þrjátíu þátttakendum í sýningunni LOSTI 2000/ORGASM 2000 sem var opnuð í Listasafninu á Akureyri þann 28. janúar síðastliðinn. Margir ágætustu listamenn þessa lands ljóstra þar upp um sínar innstu kenndir og langanir – og þar með þjóðarinnar – á jafn fjölbreyttan hátt og þeir eru margir.
Listamenn á sýningunni:
Aðalheiður Eysteinsdóttir
Arna Valsdóttir
Áslaug Thorlacius
Ásmundur Ásmundsson
Bjarni Sigurbjörnsson
Börkur Arnarson
Egill Sæbjörnsson
Erla Þórarinsdóttir
Finnur Arnar Arnarson
Friðrik Örn
Gabríela Friðriksdóttir
Gjörningaklúbburinn
Guðjón Bjarnason
Hallgrímur Helgason
Haraldur Jónsson
Ilmur Stefánsdóttir
Inga Svala Þórsdóttir
Jón Laxdal Halldórsson
Nína Magnúsdóttir
Ómar Stefánsson
Ósk Vilhjálmsdóttir
Ragnhildur Stefánsdóttir
Sara Björnsdóttir
Snorri Ásmundsson
Stefán Geir Karlsson
Stephan Stephensen
Svanur Kristbergsson
Valborg S. Ingólfsdóttir
Þorvaldur Þorsteinsson
Þórdís Alda Sigurðardóttir
Þótt sýningin kunni að koma ýmsum í opna skjöldu hafa verkin og kveikjur þeirra alltaf verið til, eða jafnlengi og önnur kámug afkvæmi hins siðaða heims. Það var því löngu tímabært að opna umræðuna um þessi blautlegu svæði þar sem fæst okkar ganga um á þurrum fótum. Í stað þess að líta álút ofan í gjótu gamalkunnugrar landslagshefðar fáum við loksins að skoða íslenskan losta með augum okkar framsæknustu listamanna. Jafnframt má sjá glampa á allt það forvitnilega sem býr í hugskoti þeirra eða hreinlega skúmaskotum vinnustofunnar. „Helsti drifkraftur listamannsins er fólgin í voninni um góðan drátt”, Þorvaldur Þorsteinsson sem á einnig verk á sýningunni. „Myndlistin er þess vegna kjörið framtíðarsstarf fyrir þann sem skammast sín fyrir áhuga sinn á barnungum módelum og hvers konar vafasömu kynlífi, því allt þetta má auðveldlega nálgast í skjóli myndlistarinnar og fá borgað fyrir í blíðu.”
Listakonan Erla Þórarinsdóttir segir þjóðina nýbúna að uppgötva kynlífsiðnaðinn og flytja inn klám til að þora að klæmast almennilega á alþjóðlega vísu. „Hingað til hefur þjóðin nefnilega mest klæmst í vísum, en nú vill hún fá að sýna sig og sjá aðra,” segir hún. Verkin á LOSTA 2000/ORGASM 2000 spanna allt frá upptökum Söru Björnsdóttur á kynórum Íslendinga, sem unnar voru í samvinnu við Lostalínuna, til risableksprautumynda Barkar Arnarsonar og Svans Kristbergssonar sem sýna meðal annars „Boðrunk” (sbr. boðhlaup) fimm íslenskra sveina.
XXXREYRI
Snorri Ásmundsson
Sýning Snorra Ásmundssonar er uppgjör hans við Akureyringinn í sjálfum sér og hefur hann skapað fantasíu, sem lýsir persónulegri upplifun hans á bæjarsamfélaginu. Sýningin samanstendur annars vegar af nýjum málverkum, sem vakið hafa mikla athygli, og hins vegar myndbandsverki sem er hluti af heimildarkvikmyndinni XXXREYRI/KLÁMTÁN. Kvikmyndin er unnin í samstarfi við Kára G. Schram kvikmyndagerðarmann og markar hún tímamót í sögu heimildarkvikmynda þar sem hún er alfarið byggð á ýkjum og lygum.
Snorri telur að klámmyndagerð á Akureyri eigi sér langar og djúpar rætur og hefur hann safnað heimildum víða að sem opinbera þetta vel geymda leyndarmál: „Klámiðnaðurinn á Akureyri er sá stærsti í heiminum í dag, ef miðað er við höfðatölu”, fullyrðir Snorri. „Yfir þúsund klámmyndir eru framleiddar þar árlega og sala á klámmyndum eykst þar með hverjum degi. Flestir Akureyringar taka virkan þátt í klámiðnaðarbransanum með einum eða öðrum hætti og er talið að yfir þrjátíu prósent af bæjarbúum hafi leikið í klámmyndum og þykir það sjálfsagt. Eftir að ég flutti suður og þarf að segja frá því að ég sé Akureyringur er undantekningarlaust sagt: „Nú, ert þú klámhundur?” Ég fæ oft tár í augun, því mér þykir vænt um Akureyri og líka klámhundinn í mér”, segir Snorri.
Þess má geta að sunnudaginn 23. janúar síðastliðinn hlotnaðist Snorra sú viðurkenning að vera útnefndur heiðursborgari Akureyrar af Akureyrar-akademíunni, sem hann veitir sjálfur forstöðu, fyrir störf sín í þágu bæjarins og einstaka hæfileika til að angra smáborgarann í okkur öllum. Athöfnin fór fram við hátíðlega athöfn við Matthíasarkirkju, en Matthías Jochumsson var fyrsti heiðursborgarinn á Akureyri og var við það tækifæri lesið kvæði eftir hann af Lárusi H. List, sem útnefndur var listamaður 20. aldar af Akureyrar-akademíunni í desember 1999.
Auður Ólafsdóttir : Erótísk náttúra Myndlistar – sögulegt lágflug
Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012
Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.