Sjónlistamiðstöðin » Sjónauki I 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

Laugardaginn 16. október opnuðu tvær sýningar á Listasafninu á Akureyri.

Annars vegar er um að ræða sýningu á verkum Stefáns Jónssonar á höggmyndum unnum úr „legofígúrum“ en hins vegar er það Sjónauki I sem er hluti af röð yfirlitssýninga þar sem fólki sem alla jafna er ekki að fjalla mikið um myndlist er boðið að velja verk á sýninguna. Hugmyndin er að skoða íslenska myndlist út frá öðru sjónarhorni en sérfræðingarnir beita alla jafnan. Það er Hjálmar Sveinsson sem velur verkin að þessu sinni og nefnir sýninguna Dauðahvöt.

Stefán Jónsson vinnur höggmyndir sínar úr „legofígúrum“ og endurgerir þannig málverk úr vestrænni listasögu frá endurreisn til daga impressionismans. Verkin má kalla “mynd af mynd” eða list um list. Stefán býður þunga listasögunnar byrginn jafnt sem kröfu nútímalistarinnar um að „gera eitthvað nýtt“. Þegar hin stóru frægu málverk listasögunnar hafa verið yfirfærð á mælikvarða lítilla höggmynda verða til nokkrar spaugilegar skrumskælingar. Að hluta til er hægt að hugleiða verk Stefáns í samhengi þeirra andspænis frummyndunum og að hluta til á skírskotuninni frá fjöldaframleiddum legokörlum til einstaklingseðlis listamanna og listaverka. Samspil efnisins í verkum Stefáns, fjöldaframleiddir plastkarlar ætlaðir sem barnaleikföng og innihaldi listarinnar, eftirlíking af hátíðlegum verðmætum sumra frægari listaverka sögunnar skapa óvenjulegar og skoplegar andstæður.

Verkin eru öll í eigu Listasafns Reykjavíkur og fengin að láni á þessa sýningu. Það sem ég fór eftir við valið var tilfinning sem ég hef lengi haft gagnvart íslenskri myndlist. Mér hefur fundist ég merkja ákveðinn streng í íslenskri myndlist, sérstaklega landslagsmálverkum, streng sem fremur er svartur en rauður. Verkin sem ég hef valið eru umlukin þögn og mjög dimmleit. Yfir þeim hvílir dulúð. Oft er myndefnið fjöll og heiðar en þar sést engin manneskja. Sérstaklega voru það málverk Jóhanns Briem sem vöktu fyrst athygli mína á þessu. Jóhann finnst mér vera einn af bestu málurum þjóðarinnar,” segir Hjálmar. „Mörg verka Jóhanns Briem eru lykilverk í þessari hugmynd minni um túlkun dauðahvatarinnar. Einkenni á mörgum landslagsmálverkum Jóhanns Briem er að manneskjurnar sem þar sjást eru nánast að renna saman við náttúruna. Þær snúa oft baki í áhorfandann og það er nánast eins og þær séu að yfirgefa mannheima, yfirgefa menninguna og hverfa inn í náttúruna. Dauðahvötin er freudískt hugtak, sú tilhneiging sem hann sagði mjög djúpstæða í manneskjunni, að afmá eigin vitund, eigið sjálf og renna saman við náttúruna. Þetta er andstæða alls sem kallast siðmenning og lífshvöt en engu að síður samkvæmt hugmyndum Freuds illviðráðanleg hvöt. (úr viðtali sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins 16. október 1999)

Hér má lesa vangaveltur Hjálmars Sveinssonar um sýninguna Dauðahvöt
Hér má sjá lista yfir þau verk sem Hjálmar valdi á sýninguna

Hér er grein eftir Aðalstein Ingólfsson um verk Stefáns

Efni um sýningarnar sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012

Sýningarnar standa frá 16. október til 5. desember 1999


NÆSTI VIÐBURÐUR

Opnun í Deiglunni 12. maí

Myndverk barna, Leikskólinn Kiðagil og Naustaskóli með skemmtilega sýningu

Nánar »

Á DÖFINNI

Gildagur 24. mars

Næsti Gildagur verður haldinn 24. mars og þá verður margt um að vera í Listagilinu

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »