Á sýningu þessari í Listasafninu á Akureyri eru verk eftir tvo listamenn. Annar þeirra, Hlynur Hallsson, er akureyringur sem um nokkurra ára skeið hefur dvalið í Þýskalandi við nám og störf, en hinn er frá Japan, Makoto Aida. Það er vissulega óvenjulegt að tefla saman svo ólíkum listamönnum frá jafn ólíkum menningarheimum og Japan og Ísland eru og það kann jafnvel að þykja óhugsandi að nokkur tengsl geti verið milli þess sem tveir slíkir listamenn gera. En þegar betur er að gáð kemur í ljós að ýmislegt er sameiginlegt, bæði með listamönnunum og með þjóðunum tveimur.
Það er markmið Listasafnsins á Akureyri að sinna jafnhliða innlendri list, og þá ekki síst list Norðlendinga, og að standa fyrir alþjóðlegu sýningarhaldi þar sem Akureyringum gefst kostur á að kynnast því sem efst er á baugi í myndlist annarra þjóða. Jafnframt er það markmið safnsins að vinna veglega að sýningum, meðal annars með því að standa faglega að umfjöllun um sýningar, gefa út sýningarskrá og halda úti fræðslu um þá list sem til sýnis er. Að þessu sinni hefur tekist vel til um að sameina þessi stefnumið öll og er það ekki síst að þakka stuðningi sem borist hefur frá Flugfélagi Íslands og frá Sasakawa-sjóðnum sem vinnur að bættum samskiptum Íslands og Japans á sviði menningar. Með styrk frá sjóðnum hefur verið hægt að bjóða hingað japanska gagnrýnandanum Satoru Nagoya sem heldur fyrirlestur um japanska samtímalist og um listamanninn Makoto Aida, en Nagoya ritar einnig grein í sýningarskrána.
Sýningin stendur frá 14. ágúst – 7. október 1999
Opnunarræða Hannesar Sigurðssonar
Myndir af verkum Hlyns Hallssonar
Efni um sýningunna sem unnið var í tilefni samantektarsýningar í árslok 2012
Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.