Myndlistafélagið hefur í samvinnu við Menningarmiðstöðina í Listagilinu, Akureyrarstofu og Listasafnið farið af stað með verkefni sem felur í sér safnakennlu í Listagilinu á Akureyri.
Við teljum mikilvægt að efla starf með börnum með safnakennslu og auknu samstarfi við skólana. Safnakennsla í Listagili gegnir þar mikilvægu hlutverki en tilgangur hennar er að leggja sérstaka áherslu á fjölskyldu- og barnamenningu og uppbyggingu á menningarstarfsemi sem eykur áhuga barna á menningu og listum.
Tekið er á móti hópum frá 8-16 8-16 mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga en 13-16 fimmtudaga og föstudaga.
Leiðsögn má panta með því að senda póst á safnkennsla@akureyri.is eða í síma: 8683599
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu safnkennslunnar
Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.