Fyrsta listaverkið sem Akureyrarbær festi kaup á var málverk eftir Freymóð Jóhannsson árið 1930. Frá þessum fyrstu kaupum og til ársins 1993 er Listasafnið á Akureyri var stofnað eignaðist bærinn um 300 listaverk, bæði málverk og höggmyndir. Við opnun safnsins var sett upp vegleg sýning á úrvali verka í eign Akureyrarbæjar.
Verkin á sýningunni voru:
Frá Þingvöllum eftir Ásgrím Jónsson
Öxarárfoss eftir Jóhannes S. Kjarval
Grímsvatnagos eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal
Anddyri Thorvaldsenssafn í Kaupmannahöfn eftir Freymóð Jóhannsson
Svanir eftir Höskuld Björnsson
Móðir með dóttur eftir Jón Engilberts
Stekkjalækjargil eftir Magnús Á. Árnason
Lag eftir Helga Vilberg
Litglaumur dagsins þagnar eftir Kristinn G. Jóhannsson
Álög eftir S. Dröfn Friðfinnsdóttur
Án titils eftir Aðalstein Svan Sigfússon
Án titils eftir Guðmund Ármann Sigurjónsson
Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.