Gildagur 24. mars
Gallerí Langi-Gangur – opnun kl. 13
ÁLFkonur opna ljósmyndasýninguna 30 DAGAR
Sýningin stendur aðeins í 2 daga : laugardag 24. mars kl. 13 – 18 og sunnudag 25. mars kl. 13 – 17. Sýningin er á veggjum á Langa-Gangi sem er á annarri hæð í Kaupvangsstræti 10, (gengið inn sama inngang og í Populus Tremula og Sal Myndlistarfélagsins-Boxið).
ÁLFkonur (ÁhugaLjósmyndaraFélag fyrir konur á Eyjafjarðarsvæðinu) er félagskapur kvenna sem hafa ljósmyndun að áhugamáli og er þessi sýning afrakstur þátttöku í 30 daga áskorun sem fólst í því að taka eina mynd á dag í einn mánuð. Þemað var fyrirfram ákveðið og hérmeð birtist útkoman.
Þetta er fimmta samsýning hópsins en þátttakendur að þessu sinni eru: Agnes H. Skúladóttir, Berglind H. Helgadóttir, Ester Guðbjörnsdóttir, Díana Bryndís, Gunnlaug Friðriksdóttir, Halla S. Gunnlaugsdóttir, Helga H. Gunnlaugsdóttir, Hrefna Harðardóttir, Lilja Guðmundsdóttir, Linda Ólafsdóttir og Margrét Elfa Jónsdóttir.
Ketilhús – opið kl. 13-17
Mundi Vondi: A Retrospective. Úrval verka sem endurspeglar margþættan starfsferil listamannsins. Til sýnis eru m.a. upptökur af gjörningum, stuttmyndir, málverk, teikningar og fatnaður en að auki var teiknimyndasagan Mótsagnarlögmálið afhjúpuð í fyrsta sinn, en hún var unnin sérstaklega fyrir þessa sýningu og er samstarfsverkefni Munda Vonda og Magnúsar Björns Ólafssonar. Í Mótsagnarlögmálinu, sem skrifað er á dulmáli, ríða höfundarnir heimspekinni að þolmörkum venjuleikans með því að hvolfa hinu viðtekna ofan í endurtúlkun ýmissa kunnra minna úr íslenskri þjóðtrú.
Í sköpun sinni og eyðileggingu tekst Mundi Vondi á við makt flökurleikans sem herjar á alla sem trúa því að nútíminn sé bæði nýr og gamall í senn og að enginn stígi tvisvar í sömu ána; á meðan tíminn líður um háspennukefli framfaranna og mannveran keppist við að skreyta sig sérsaumuðum martröðum sem hún dýrkar svo og fyrirlítur á sama tíma, tekur ljótur listamaðurinn upp blýant og teiknar eitthvað sem honum finnst fallegt og skemmtilegt: Það er bara einn dropi í hafinu. A er hvorki A né A. Útilokum ekkert. Sköpum af skemmdarfýsn. Höfum gaman.
Flóra – opnun kl. 14
Sýning Guðrúnar Pálínu í Flóru byggir á hugmyndum tengdum hlutverki og stöðu föðursins. Vonast er til að hún varpi fram spurningum til áhorfandans og vangaveltum. Sýningin byggir á ættfræðirannsóknum en þær eru ein leið til að skilja erfðafræðilega stöðu einstaklingsins. Á sýningunni notar Guðrún Pálína ættfræði föður síns í karllegg og býr til sjónræna framsetningu andlita.
Populus Tremula – opnun kl. 14
Helga Sigríður: Áttblaðarósin. Helga Sigríður notar Áttablaðarósina sem grunn í málverkin á sýningunni. Áttablaðarósin hefur lengi verið algeng í íslenskum hannyrðum hún byggir á fornu mynstri sem minnir margt á frostrós. Þetta forna mynstur færir Helga Sigríður í nýjan búning með því að mála það á striga í björtum litum.
Mjólkurbúðin – opið kl. 14-17
Dagrún Matthíasdóttir sýnir verkaröðina Pottar. Sýningin samanstendur af málverkum unnum með olíu og blandaðri tækni þar sem pottformið er í forgrunni.
Listasafnið – opnun kl. 15
Kristinn E. Hrafnsson opnar sýninguna Misvísun. Heitið er lýsandi fyrir það sem má kalla stöðuga óvissu eða sífellda hreyfingu allra hluta, enda er sýningin ekki öll þar sem hún er séð.
Gallerí Box – opnun kl. 15
Stefán Boulter sýnir nýleg málverk og steinþrykk í anda ljóðræns raunsæis. Á þessari sýningu veltir Stefán fyrir sér m.a. hafinu og hlutverki vatnsins sem táknmynd í eigin lífi og listaverkum. Þar skipar innsæið, tilfinningar, minningar og draumar ríkan þátt. Stefán hefur verið virkur þáttakandi í Kitsch hreyfingunni, þetta er hópur málara víðs vegar úr heiminum sem hafa skapað nýjan heimspekilegan grundvöll fyrir listsköpun sinni.
Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.