Listasafnið á Akureyri » Guðir og menn 
Listasafnið á Akureyri Um safnið Sýningar Listamenn Útgefið efni Safnfræðsla Íslenska English Facebook Flickr Twitter

Guðir og menn

Á Akureyrarvöku, laugardaginn 28. ágúst kl. 15, voru tvær ljósmyndasýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri, annars vegar hin árlega sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands og hins vegar sýning á myndröðinni Trú eftir norska ljósmyndarann Ken Opprann.

Myndir blaðaljósmyndara eru í ólgandi litum, ágengar og átakanlegar, teknar á stafrænar vélar af dýrustu sort sem fanga hvæsandi hita andartaksins í margra megabæta upplausn. Til samanburðar tekur Opprann sínar myndir á filmu í svarthvítu með gömlu aðferðinni. Íslenskur veruleiki, linnulausar erjur í bland við niðurdrepandi múgæsinginn, víkur fyrir kyrrlátri sjálfsskoðun, skarkali ytri veruleika fyrir bljúgri bæn, hér og nú fyrir því tímalausa.

Meira um sýningarnar

Í klefa vestursalar Listasafnsins hefur verið komið upp hefðbundnu myrkraherbergi þar sem gestir fá að kynnast framköllun og stækkun mynda frá filmu yfir á pappír. Hér sýna meðlimir í Áhugaljósmyndaklúbbi Akureyrar ljósmyndir teknar á filmu og þau tæki, efni og vinnuaðferðir sem þeir beita í aðstöðu félagsins, sem starfað hefur í tvo áratugi í bænum.

Sýningarnar standa til 17. október.
Nánari upplýsingar veitir Hannes Sigurðsson forstöðumaður í síma 461-2610/899-3386. Netfang: hannes@art.is.
Listasafnið er opið alla daga frá kl. 12–17 og er aðgangur ókeypis í boði Akureyrarbæjar.


UPPLÝSINGAR

Listasafnið á Akureyri

Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá 12-17

Aðgangur er ókeypis í boði Akureyrarbæjar

Nánar »

Á DÖFINNI

Opnun í Ketilhúsinu 11. febrúar kl. 15

Titill sýningarinnar er Mórbergur – Rafsteinn – Sæmunkur en það eru nafngiftir sem listamennirnir Árni Valur Axfjörð, Hafsteinn Michael Guðmundsson og Jón Sæmundur Auðarson hafa valið sér í tilefni sýningarinnar.

Nánar »

ÚTGÁFA

Facing China

Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.

Fleiri bækur »